Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 187
UM RITSTÍLA OG KUMLIN AÐ KROPPI
191
minni, en um sjónarmun er naumast að ræða, en það er ástæða til að
hafa orð á þessu vegna þess sem á eftir fer, nefnilega:
Að öðru leyti er það merkisatvik að kvenhöfuðið hefur þá verið
stærra en karlshöfuðið, svo sem sjá má af rannsókn Guðmundar
læknis Björnssonar.7
Þetta er ónákvæm frásögn hjá Bruun, Guðmundur gerði ekki sína
athugun á báðum hauskúpunum frá Kroppi, heldur á karlhauskúpunni
frá Kroppi og kvenhauskúpu frá Brú í Jökuldal eins og frásögn, myndir
og mælingar vitna um,8 9 og sem koma heim við mínar athuganir. Þegar
ég tók beinin frá Kroppi til rannsóknar 1941 voru þau í kassa merktum
4889a og b, mannabeinin reyndust úr tveim mönnum og var tiltölulega
auðvelt af útliti þeirra að sjá hver saman áttu og merkti ég þau safn-
númerunum 4889a og 4889b og á mælingarblöðin Hll og H12. Nokkur
dýrabein, mest hrossabein, voru mcð þeim í kassanunr. Mannabeinin
voru eftirfarandi: Hll (4889a);81, 1 kumf’: Bein fullorðins (mat.-sen.)
karls, langhöfða (lengdarbreiddarvísitala 72,3) og líkamshæð 159V2 cm.
Hann er með ennissaum (sutura metopica), áberandi gómgarð (torus pal-
atinus), hliðarskarð (diastema) og smábeinútvexti á flestum hryggjar-
liðum. Hauskúpa, bringubeinshjalt, 13 hryggjarliðir, hægra viðbein og
lærleggur eru heil að mestu, en talsvert sködduð eru bæði herðablöðin,
vinstra viðbein, hægri upparmsleggur, sveif, öln og mjaðmarbein.
H12 (4889b); 81, 2 kuml.10 Bein fullorðinnar (mat.) konu, meðallang-
höfða (vísitala 75,3), hæð 158 cm. Það vantar alla 2. (þ. e. P2 d. og s.
°g P2 d. og s.) forjaxla og mun konan aldrei hafa tekið þá og lítilsháttar
beinaukar eru á báðum lærleggshöfðum. Andlitshluti hauskúpu er
dálítið skaddaður og aðeins banakringla og einn annar hryggjarliður eru
til. Vinstra viðbein, upparmsleggur, sköflungur og vala, hægri lær-
leggur og bæði hælbein eru heilleg. Talsvert sködduð eru hægri upp-
armsleggur, báðar sveifir, bæði mjaðmarbein, vinstri lærleggur, hægri
sköflungur, báðir dálkar.
í skýrslu um Kroppsfundinn er ekki getið til hverrar áttar höfuð
hinna dysjuðu vissu, en þegar athuguð er varðveisla beinagrindanna í
kumlunum kemur í ljós að í Hll vantar öll bein neðan hnés og að auki
vinstri lærlegg, mjaðmarbein, armlegg, sveif og öln. Úr H12 eru varð-
7. Sama heimild, bls. 21.
8. Sama heimild, skýrsla Guðmundar Björnssonar um Kropps-fundinn, bls. 21-24.
9. Kristján Eldjárn: Kuml og haugfé, bls. 144.
10. Sama heimild, bls. 144.