Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 44
1. KAFLI
STAÐHÆTTIR OG ÖRNEFNI
í OG KRINGUM PAPEY
Papey liggur úti fyrir sunnanverðri suðausturströnd landsins (4.
mynd) og taldist fyrrum til Álftafjarðarhrepps hins forna, en nú telst
hún til Búlandshrepps, sem er hluti hans. Á allri suðausturströndinni
lætur hún mikið á sér bera af landi að sjá. Nánar tiltekið liggur eyjan
64° 36‘ norðlægrar breiddar og 14° 11 ‘ vestlægrar lengdar. Hún er svo
sem framhald af skerjum þeim er ganga út frá Búlandi sunnan Beru-
fjarðar, og munu þar vera um 6 km milli lands og eyjar eða um 3,3 sjó-
mílur. Er það sund heldur óhrein siglingaleið, sker mörg og boðar. Frá
Djúpavogi var talinn tveggja stunda róður til eyjarinnar í góðu veðri.
Stærð hennar er um 2 km2. Hún er talsvert vogskorin og svo liefur
verið sagt frá gamalli tíð, að kringum Papey sé „skammdegisganga",
þ.e. að skemmstur dagur sé nokkurn veginn hæfllega langur tími til að
ganga umhverfis eyjuna, út á hvern tanga og inn í hverja vík. Þetta
virðist þó munu vera hægðarleikur fyrir léttan göngumann. Nokkrar
smærri eyjar eru umhverfis Papey, allar nálægar.
Papey liggur í köldum sjó og er þar þokuríki í meira lagi og sumar-
hiti lágur, en hins vegar snjólétt á vetur, þótt úrkomusamt sé. Fé
gengur þar vel fram sjálfala flest ár. Miklir straumar eru umhverfis
eyjuna og fremur stormasamt, svo að brim eru allmikil og rýkur sjór
langt á land upp í stórviðrum. í minnum er haft stórbrim sem gerði árið
1909 og Gísli bóndi Þorvarðarson vitnaði jafnan til og kallaði „mikla
rosann“. Sér enn grjót sem það brim bar á land, enda huldust þá
Hrafnabjörg öll í brimlöðri frá bæ að sjá, og eru þau þó 44 m há.
Papey er víðast hömrum gyrt og eru margir sjávarhamrar þar þver-
hníptir og 10—20 m háir, en allvíða er þó hæðin talsvert meiri. Eyjan er
ákaflega mishæðótt og er það aðaleinkenni hennar að víða gnæfa kletta-
hólar einstakir og skýrt afmarkaðir, og sér þar víða í berg, en grænar
gróðurtorfur hreykja sé á kollinum. Greinilegar jökulrispur á berum
bergkollum sýna, að eyjan hefur verið hulin jökli á síðasta ísaldar-