Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 163
TVÖ HÚS VIÐ ÁTTAHRINGSVOG
167
bendir til þess, að húsið hafi fleiri en eitt byggingarskeið. Það hefur
verið reist á allt að því berri klöppinni og eftir að það fór úr notkun
hefur aldrei verið byggt á tóft þess. Hinsvegar sáust utanhúss nokkur
merki mannaverka, sem varla eða ekki koma húsinu við. í lang-
skurðinum sést vestur af vesturgafli (58. mynd) þunnt lag eða dreif af
eldhúsösku á 50 sm dýpi eða jafndjúpt húsgólfinu. Ekki er ástæða til að
ætla annað en að aska þessi hafi borist út úr húsinu.
Oðru máli gegnir um mannvistarlag, sem fannst austur af austurgafli
hússins. Það kom í ljós í langskurði (58. mynd), að öskudreif var undir
gaflhlaðinu og þegar skurðurinn var víkkaður út til beggja hliða, eftir
að lokið var rannsókn hússins, kom í ljós hvað þarna var á seyði.
Austur af miðjum húsgafli og að nokkru undir honum, var bleik- og
svartflikróttur öskublettur, 1-1,30 m í þvermál, mest 8 sm á þykkt.
Askan var í ofurlítilli hvilft, þykkust í miðju og smáþynntist til allra
hliða, meðal annars 15 sm inn undir bálkinn í austurenda hússins, þar
sem hún hvarf alveg. Efnið í þessum öskubletti virtist vera bleik aska,
svartur sandur, viðarkolabútar og gjallmolar, enn fremur mýrarrauði.
Allt myndaði þetta býsna harða storku og var tekið vænt sýni til grein-
ingar, en lagið annars látið óhreyft að mestu. Austur af öskublettinum,
lengst um 1 m, og var þar farið að snarhalla austur af hólnum, voru
viðarkolabútar margir innan um moldina, allt birki, heillegir og talsvert
stórir bútar, alls ekki troðnir eða traðkaðir eins og gerist inni í húsum.
Á einum stað sást þó nokkuð smágerður viðarkolasalli í tveimur lögum
með stuttu millibili. Góð sýnishorn af viðarkolum voru tekin og aldurs-
greind með C14 aðferðinni (sjá P 94). Greiningin gaf aldur á bilinu frá
11. til 12. aldar.
Augljóst er, að þessar leifar austur af húsinu eru eldri en húsið sjálft;
austurgaflhlaðið hefur verið reist ofan á þeim. Svo virðist sem gjallið og
viðarkolin bendi til smíða, fremur en rauðablásturs, hvernig sem á slíku
stendur á þessum stað. Inni í húsinu fannst hvorki nokkur gjallmoli né
heldur kolabútar, og það eitt nægir því til sönnunar, að þessar minjar
eru húsinu óviðkomandi. Merkilegt er, að viðarkolin eru öll úr birki en
ekki rekavið, og vekur það þá spurningu, hvort birkikjarr hafi verið í
Papey í fornöld, þótt vitaskuld geti kolin verið flutt ofan af landi. Trautt
mun verða úr því skorið hvort heldur er.
Frágangnr uppgraftarins
Eins og þegar hefur verið á drepið, voru veggir ekki rofnir nema að-
eins þar sem langskurðurinn fór gegnum gaflana. Útveggir voru ekki