Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 241
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1988
245
margir óttuðust að sá styrkur kynni að skila sér illa, enda fór svo að við
endurskoðun frumvarpsins var staða byggðasafnanna ákveðin hin sama
og áður. En þar sem fjárveiting var ekki á fjárlögum veitti ríkissjóður
aukafjárveitingu, 6 millj. kr., þannig að styrkir til safnanna yrðu viðlíka
og áður.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir var ráðin safnstjóri við Minjasafnið á
Akureyri frá 15. október.
Safnið í Borgarnesi var flutt í nýja safnahúsið, sem keypt var á fyrra
ári fyrir söfn héraðsins, en sett upp aðeins til bráðabirgða, þar sem það
hefur ekki fengið framtíðarstað sinn í húsinu.
Haldið var áfram viðgerð gamla Garðahússins á Akranesi svo og að
koma kútter Sigurfara í endanlegt lag, og gerði Pétur G. Jónsson við
gamla eldavél, sem sett verður í káetuna.
Ákveðið var að flytja tvö gömul hús til safnsins á Glaumbæ og setja
þau niður neðan við bæjarhólinn. Þetta er svonefnd Gilsstofa, sem reist
var um miðja síðustu öld á Espihóli í Eyjafirði en hefur lengi staðið á
ýmsum stöðum í Skagafirði og í ýmsum myndum, svo og gamla íbúð-
arhúsið frá Ási í Hegranesi, sem reist var 1883-86. Var hlaðinn grunnur
undir Gilsstofuna og hitt húsið búið undir flutning að vetri.
Safnið á Grenjaðarstað átti 30 ára afmæli og var það haldið hátíðlegt
9. júlí. Var hátíðarsamkoma þar í kirkjunni eftir messu.
Lögð var hitaleiðsla að bænum í Glaumbæ og snyrtihúsi, en verður
ekki tengt hitakerfi fyrr en að vori.
Á ísafirði var Turnhúsið svonefnda frá 18. öld tekið í notkun sem
sýningarhús fyrir sjóminjar byggðasafnsins. Eru húsin þarna í Neðsta-
kaupstað að komast í fallegt horf og umhverfi þeirra hefur tekið stakka-
skiptum og er sýning safnsins öll hin snyrtilegasta. Stefnt mun vera.að
því, að byggðasafnið flytjist smám saman af lofti sundhallarinnar, sem
er óhentugt húsnæði, og í hin gömlu húsin eftir því sem næst að gera
við þau.
Hafin var endurbygging gamla bæjarins frá Skál á Síðu við byggða-
safnið í Skógum, en hann var með fjósbaðstofu og gömlu skaftfellsku
lagi. Þá var ákveðið að ráðast í byggingu nýs safnhúss, sem stæði
framan við gamla safnhúsið og tengdist því.