Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 57
STAÐHÆTTIR OG ÖRNEFNI í OG KRINGUM PAPEY
61
naumast á neinum af þessum stöðum að róa til fiskjar; svo sá góði
Kumper hefur hvorki gert öðrum né sjálfum sér gagn með þessari
sinni fallbyssuskothríð.24
Pess má minnast, að sker heitir Ormsbæh úti fyrir mynni Hamars-
íjarðar.
Skammt vestur af Krosshól er Krosshólstangi (48) og gegnt honum
Áttahringsvogstangi (49) (eða Áttærings-). Milli þessara tanga er önnur
aðalhöfn eyjarinnar Áttahringsvogur (Áttæringsvogur) (50). Þar er
næstum alltaf góð lending eða lega, þegar slæmt er í Selavogi og gott
uppsátur fyrir smábáta. Daníelsvík (51) heitir lítil vík suðaustur úr
innanverðum Áttahringsvog. Vestur af Áttahringsvogstanga, sem er
mestmegnis grösugar valllendisbrekkur, er allvíðlend mýri. Nyrst í
henni er allstór tjörn, sem aldrei þornar upp, en vestan við mýrina er
hár hóll, Háihóll (52). Norður og vestur af honum eru margir lægri
hólar og melar og hallar landinu norður og vestur að sjó. Fram með
sjónum er þó sunrs staðar dálítið valllendi. Vestast og nyrst á þessu
svæði er ofurlítill tangi og liggur kláfferja þaðan yfir á Eiði (53), sem er
alllöng og mjó eyja. Heitir sundið á milli Garnarsund (54). Frá kláfferj-
unni er haldið í suður með ströndinni, og eftir nokkrar mínútur kemur
í ljós vogur, sem heitir Mýrasund (55), grunn og léleg höfn. Skammt
þaðan í suðausturátt er langur og lágur, flatlaga hóll. Á honum eru
rústir, sem heita Goðatœttur (56). Sumir segja að mótað hafi fyrir garði
í kringum þær, en hann sést ekki lengur. Votlent er þarna í kring.
Sunnan Mýrasunds er allbreiður tangi, en sunnan hans eru nokkrir
smávogar eða víkur, sem nefnast Hákarlavogar (57).25 í einum þeirra er
klettahlein (gangur) sams konar og Stiginn við Höfðann og hefur sömu
stefnu. Fleiri líkir gangar eru víðs vegar um eyna. í syðsta Hákarlavo'g-
inum er sæmilegt uppsátur fyrir smábáta og sennilega þrautalending í
Papey. Utarlega í þeim vog er standur, Hákarlavogsstandur (58) og er all-
stórt gat í gegnum hann. Fýlastandur (59) er einnig rétt út at Hákarla-
vog. Þar verpa fáeinir fýlar. Talsvert rituvarp er í Hákarlavogum, því
að björgin þar eru hlýleg og sérlega vel löguð til hreiðurgerðar fyrir rit-
una, þótt þau séu lág. Mitt á milli hákarlavoga er Mókofahóll (60). Þar
eru mókofar. Sunnan við Hákarlavoga er Hákarlavogstangi (61), en fram
24. Ó. Olavius 1780, bls. 468.
25. í riti eftir Jónas Hallgrímsson, 1934-37, bls. 268 stcndur Hákonarvogur, en er bcr-
sýnilega villa fyrir Hákarlavogar, eins og í sóknarlýsingunni frá 1840 stendur, en
þaðan hefur Jónas fróðleik sinn, og ritgerð hans um eyjar og sker í Múlaþingi hefur
ekkert sjálfstætt heimildagildi að því er til Papeyjar tekur.