Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 70
74
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
sig jafnvel sjá á frásögninni að hún sé viðbót sem aukið hafi verið inn
í upphaflega textann. Að sjálfsögðu gæti þessu verið þannig farið, og
verður raunar ekki annað séð en að þetta hljóti að hafa verið svo. Er það
ekki alveg þýðingarlaust fyrir það mat sem lagt verður á papafrásögnina
í íslendingabók, að hún er viðbót Ara í seinni gerð.
Þó að Hist. Norv. geti ekki papa á íslandi, nefnir hún papa á
Orkneyjum á þessa leið:
Istas insulas primitus Peti et Papæ inhabitabant........Papæ
vero proptcr albas, quibus ut clerici induebantur, vocati sunt, unde
in Theutonia lingua omnes clerici papæ dicuntur. Adhuc quædam
insula Papey ab illis denominatur. Sed ut per habitunr et apices
librorum eorum ibidem derelictorum notatur, Africani fuerunt,
judaismo adhærentes.18
(í fyrstu bjuggu Péttar og Papar á þessum eyjum.....En Papar
eru svo kallaðir af hvítum klæðum, sem þeir ganga í eins og klerkar,
enda eru allir klerkar kallaðir papar á þjóðversku. Ennþá heitir ey
nokkur Papey eftir þeim. Eftir því sem ráðið verður af klæðum
þeirra og bókum þeirra sem þeir létu eftir, hafa þeir verið Afríku-
menn, gyðingatrúar).
Ekki verður því á móti mælt, sem Hermann Pálsson hefur vikið
nokkuð að, að viss samsvörun er milli þessarar lýsingar Hist. Norv. á
pöpum í Orkneyjum og frásögn íslendingabókar af pöpum á íslandi.19
Á báðum stöðum eru þessir menn fyrir, þegar norrænir menn koma til
landanna, á báðum stöðum þekkjast þeir á ytri menningareinkennum
og þó einkum og sér í lagi bókum, sem þeir skildu eftir. Einhvers konar
tengsl hljóta að vera hér fyrir hendi, þótt ekki sé auðséð, hvernig þau
eru, þar sem höfundur Hist. Norv. hefur haft fyrir sér íslendingabók,
sem papafrásögnin var ekki í. Annars hefði maður getað látið sér til
hugar koma, að hann hefði að nokkru leyti yfirfært hana á Orkneyjar.
Erfitt mun verða að benda á rittengsl, en ef til vill má hugsa sér annars
konar tengsl, og verður vikið að því síðar. Ef til vill geta ummæli Hist.
Norv. um papa í Orkneyjum haft áhrif á dóm þann, sem upp verður
kveðinn um papafrásögn íslendingabókar, en að öðru leyti er ekkert á
henni að græða umfram íslendingabók fremur en á Theodoricusi.
Þá er að hverfa að íslenskum heimildum eftir daga Ara, en þar er ekki
18. Mon. Hist. Norv., bls. 88-89.
19. Hermann Pálsson 1965, bls. 116—117.