Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 225
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1988
229
Þá vann nefndin að ýmsum málum safnsins, einkum skipulagningu
og fjármögnun nýframkvæmda og viðgerðar safnhússins.
Ferðir og fundir safnmanna
Ferðir og fundir safnmanna á vegum Þjóðminjasafnsins voru þessir
helztir:
Safnmannafundur var haldinn dagana 6.-8. október í Þjóðminjasafn-
inu á vegum þess og Árbæjarsafns. Var fundurinn með líku sniði og
þeir tveir, sem áður hafa verið. Skýrt var frá starfi og ástandi safnanna,
rætt um húsavernd og þjóðminjalög og margt annað, sem söfnin
varðar. Þá var var farið í skoðunarferðir í Árbæjarsafn, þar sem þeginn
var hádegisverður, í Listasafn íslands, Myntasafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns, Sjóminjasafnið í Hafnarfirði og byggðasafnið þar svo
og í Póst- og símaminjasafnið. 9. okt. var svo farið austur fyrir Fjall,
til Eyrarbakka og Stokkseyrar og á Selfoss og skoðuð söfnin á þessum
stöðum. Þótti fundurinn heppnast vel og var á ýmsan hátt lærdómsrík-
ur, enda er mikilvægt, að safnmenn hafi með sér sem nánasta kynningu.
Þjóðminjavörður sótti ásamt Árna Björnssyni, Elsu E. Guðjónsson,
Lilju Árnadóttur og Margréti Gísladóttur norrænan safnmannafund
12.-16. júní í Helsingfors. Þá ferðaðist hann ásamt Pétri G. Jónssyni
viðgerðarmanni og skoðaði tæknisöfn og sjóminjasöfn í Noregi, Dan-
inörku og Englandi 8.-16. maí, einkum til að kynnast uppbyggingu,
söfnun og viðgerðum safngripa. Þá sótti þjóðminjavörður einnig fund
þjóðminjavarða Norðurlanda í Fredrikshamn í Finnlandi 19.—22. sept-
ember og í sambandi við hann fund í Stokkhólmi 16. sept. um lán og
úrval gripa frá þjóðminjasöfnum Norðurlanda á fyrirhugaða víkinga-
sýningu í París 1992.
Guðmundur Ólafsson sótti ásamt Mjöll Snæsdóttur ráðstefnuna „The
Norse in the North Atlantic“ í Maine í Bandaríkjunum í boði þarlendra
aðila 18.-21. apríl og fluttu þau þar erindi.
Elsa E. Guðjónsson sótti Nordisk iconografisk symposium í Gran,
Noregi 16.-21. sept.
Bryndís Sverrisdóttir safnkennari sótti alþjóðlegt þing safnkennara,
sem haldið var í Aþenu í Grikklandi 9.-14. október.
Ferðir safnmanna innanlands eru að sjálfsögðu fjölmargar árlega og
ekki unnt að tíunda nema hinar helztu. Má helzt nefna, að starfsmenn
safnsins voru á Bíldudal 18,—19. maí vegna viðgerðar gamalla húsa þar
og skoðunar Selárdalskirkju svo og leifa þeirra sem til eru af Otrardals-