Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 236
240
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
á þriggja metra dýpi. - Að uppgrefti loknum vann Sigurður Bergsteins-
son að hreinteikningu og skráningu muna til áramóta.
Þjóðminjasafnið sá einnig um rannsókn í Reykholti, þar sem gerð
hafði verið forkönnun árið 1987. Var graíinn upp hluti bæjarins frá síð-
ustu öldum, og kornu m.a. fram bæjargöng og eldhús, sem virðast frá
18. öld. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur stjórnaði rann-
sókninni.
Svonefnd Hjónadys í Kópavogi, rétt austan við þjóðveginn hjá gamla
þingstaðnum og friðlýst var, var grafin upp vegna breikkunar vegarins.
Þar komu upp bein sem munu af þeim Steinunni Guðmundsdóttur og
Sigurði Arasyni frá Árbæ, sem tekin voru af lífi þar 1704. Annaðist
Guðmundur Ólafsson deildarstjóri rannsóknina.
Þá gerði Guðmundur frekari könnun á gamla bæjarstæðinu í Skál-
holti 8. —12. ágúst og var það framhald fyrri athugana. Er þetta til
undirbúnings stærri rannsókna, sem stefnt er að síðar. Var grafíð m.a.
í Kyndluhól, sem reyndist fremur gerður af taði, mold og mannvistar-
leifum heldur en ösku, sem búizt hafði verið við. Einnig var grafið við
útihús og önnur mannvirki í útjaðri svæðisins. Hefur nú fengizt allgóð
rnynd af minjum á bæjarstæðinu og þarf að vinna betur úr þeinr upp-
lýsingum sem fengizt hafa, áður en farið verður í frekari rannsókn á
staðnum.
Hinn 3. júní kannaði Guðmundur Ólafsson ásanrt fleirum fornar
rústir hjá Hrunakróki í Hrunamannahreppi, sem vart hafði orðið við
áður. Virðist þar senr um forna skálarúst geti verið að ræða.
29. júlí-1. ágúst rannsakaði Guðmundur og aðrir sérfræðingar minjar
um forna járngerð í landi Ytri-Þorsteinsstaða í Dölum og fannst þar
stór kolabingur blandaður gjalli. — Styrkti Vísindasjóður rannsóknina.
Nokkur rannsókn var gerð innan Hóladómkirkju vegna hitalagna,
sem grafa þurfti niður í gólflagið, og komu þar í ljós bein úr um 20 ein-
staklingum, en gröfunum hafði verið rótað er kirkjan var reist eftir
miðja 18. öld. Er talið líklegt, að bein þessi sum hver séu úr þekktu
fólki, svo sem Gísla biskupi Þorlákssyni, Jóni biskupi Vigfússyni og
tveimur sonum Steins biskups Jónssonar, sem létust ungir. Talsverðar
leifar af líkkistum fundust og kistuskildir og fatnaðarleifar.
Próf. Jón Steffensen greindi og rannsakaði bein þessi sem og önnur
mannabein er upp voru grafin, og lagði hann ómælda vinnu í það verk
eins og um mörg undanfarin ár er mannabein hafa fundizt.
Lítils háttar rannsókn var gerð undir gólfi gamla Garðahússins á
Akranesi, sem verið er að gera við og stendur á garnla bæjarstæðinu.
Fannst þar m.a. eldstæði.