Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 83
MANNAMINJAR SEM MÆLD'AR VORU UPP OG RANNSAKAÐAR
87
vikið að því í sambandi við rústirnar í Goðatættum. Gísli byggði það,
eflaust að skaftfellskum hætti, því að hann var Öræfingur, en hellurnar,
sem í þakinu eru, voru í Papey, þegar hann kom þangað. Margar þeirra
eru geysilega stórar, en merkilegar eru þær einkum vegna þess, að þær
hafa allar verið fluttar ofan af landi; engar slíkar hellur finnast í náttúr-
unnar ríki í Papey. Kunnugir menn telja líklegast, að hellur þessar séu
úr Blábjörgum milli Melrakkaness og Geithellna. Þær hafa verið eilíf
eign, þegar þær á annað borð voru komnar út í Papey. Mest haf á þeim
stærstu er á annan metra.
Nú verður vikið að ýmsum mannaminjum, sem eldri munu vera en
svo að séu frá dögum Gísla bónda eða næstu ábúenda á undan honum.
4A. írskuhólar og Papatœttur
Óhjákvæmilegt er að fjalla um þessa tvo staði saman fyrst um sinn og
gera grein fyrir nafnaruglingi, sem orðið hefur. Síðan verður lýst
hvorum staðnum fyrir sig. írskuhólar heita nú suðaustast á eynni, smá-
hólar hér um bil í suður frá bæ og austur af Hjallatanga, en Papatættur
eru gamlar tóftir lengst austur á ey, upp af Mávabyggðavík, samanber
örnefnaskrá hér á undan. Lítum nú á elstu heimildir um þessa staði.
f ísafold 24. janúar 1879 er birt bréf af Austfjörðum, nafnlaust, en þó
má af öllum líkum ráða, að það hafi skrifað Snorri Jónsson dýralæknir
í Papey. Bréfritari skrifar t. d. „hér“, þegar hann á við Papey. Snorri var
Papeyingur, sonur Jóns Þorvarðarsonar yngra, bónda þar, varð fyrsti
útlærði dýralæknir íslenskur, en andaðist aðeins 35 ára að aldri, 4. nóv-
ember 1879, hjá foreldrum sínum heima í Papey og er grafinn þar.
Snorri fékkst töluvert við ritstörf.2
Þeir ættmenn höfðu lengi búið í Papey : Jón yngri Þorvarðarson faðir
Snorra, á undan honum bróðir hans Jón eldri Þorvarðarson, á undan
honum faðir þeirra Þorvarður Jónsson og þar á undan foreldrar hans
Jón Árnason og Kristín Jakobsdóttir, sem að vísu voru ekki Papeyingar
að uppruna, en hún var systurdóttir Mensaldurs Rabens hins ríka bónda
í Papey, sonar Jóns ríka í Papey Jónssonar.3 Nægir þetta til að sýna, að
Snorri dýralæknir hefði átt að geta búið að mjög gömlum Papeyjar-
minningum og að full ástæða er til að taka mark á því sem hann hefur
að segja um staðfræði í eynni, en það er því miður helst til lítið í þessu
eina bréfi hans. Hann segir:
2. Halldór Stefánsson og Eiríkur Sigurðsson 1951, bls. 32.
3. Ibid, bls. 17 o. áfr.