Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 231
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1988
235
sem ekki eru á vegum Þjóðminjasafnsins en safnið eða Húsafriðunar-
nefnd hafa þó meiri eða minni afskipti af og hljóta oft styrk úr Húsa-
friðunarsjóði. — Skal hér gerð grein fyrir helztu verkefnum, sem snerta
safnið þannig.
Hjörleifur Stefánsson gcrði tillögur að viðgerð gamla skólahússins á
Bíldudal, sem Pétur Thorsteinsson reisti 1903, svo og gömlu rafstöðv-
arinnar þar frá 1916—18, og einnig var reynt að fá varðveitta gömlu
smiðjuna, sem einnig er frá tíð Péturs Thorsteinssonar. Viðgerðir hóf-
ust þó ekki á árinu.
Turnhúsið í Neðstakaupstað á ísafirði var fullbúið og opnuð þar
sjóminjadeild byggðasafnsins.
í sambandi við ferð að Tungunesi var kirkjan á Hofi á Skagaströnd,
scm reist var 1868, könnuð og ráð lögð á um viðgerð. Þá var kannað
það sem eftir er af bænum í Höfnum, sem reistur var sama ár, gríðar-
merkur bær og einstaklega vcl viðaður og vandaður að smíð, vafalaust
allur úr rekaviði, en aðeins er nú eftir hluti hans. Áhugi er á, að
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna reyni að taka hann til varð-
veizlu og endursmíði.
Hóladómkirkja var rækilega endurgerð hið innra og stóð viðgerðin
mestallt árið. Hún er framkvæmd á vegum Hólanefndar, cn sýnt þótti
er ekki varð lengur undan vikizt að gera stórviðgerð á kirkjunni, að
skipa þyrfti nefnd og fá sérstaka fjárveitingu til viðgerðarinnar. Fram-
kvæmdastjóri verksins er Guðmundur Guðmundsson, en yfirumsjón
með því hefur Þorsteinn Gunnarsson arkitekt. Hóladómkirkja er því
ekki lengur á beinu framfæri Þjóðminjasafnsins enda staðurinn orðinn
vígslubiskupssetur og því eðlilegt að Þjóðkirkjan hafi sjálf mestan veg
og vanda af kirkjunni, en hun er hins vegar á fornleifaskrá og allar við-
gerðir unnar í samráði við þjóðminjavörð.
Allir gripir og tréverk kirkjunnar var tckið úr henni í upphafi ársins
og aðstoðaði Kristín H. Sigurðardóttir forvörður við það verk af safns-
ins hálfu. Gripunum var komið fyrir á Sauðárkróki til geymslu, en
síðan var brotið múrverk úr kirkjunni, tekið upp gólf og veggir og loft
því næst múrað að nýju með kalki undir leiðsögn dansks múrara, gólfið
lækkað í upphaflega hæð og endurlagt úr rauðum sandsteini úr Hóla-
byrðu og tréverk endurnýjað að hluta. Er tckið var innan úr kirkjunni
nú komu ýmis atriði í ljós sem sýndu, að sumt hafði verið rangt frá-
gengið við viðgerðina 1929 miðað við það sem upphaflega var, þar sem
þá var aðeins tekið innan úr kirkjunni að hluta. Þannig er t. d. aftari
milligerð nú lægri og bekkjabök einnig.
Altarisbríkin stóra er enn til viðgerðar í safninu, cn það lánaði aftur