Norðurljósið - 01.01.1982, Side 50

Norðurljósið - 01.01.1982, Side 50
50 NORÐURLJÓSIÐ Borgundarhólmsklukkan stóð þar í stofunni. Þegar Jesús stóð þarna, var eins og tik - tak hljóðið yrði sterkara en áður. A einhvern óvenjulegan hátt tók ég eftir því, hve fljótt tíminn líður. Eg fór að hugsa um, hvernig við höfðum, við ýmis tækifæri, safnast saman í þessari stofu og talað um einskisverð málefni. Þessum kvöldum hafði verið eytt til ónýtis. Mikið talað, en ekkert af því hafði nokkurt gildi fyrir eilífðina. Hjarta mitt tók að slá mjög hratt, þegar Jesús fór yfír að sjónvarps- stólnum. Ég óttaðist, hvað hann mundi nú segja. Allur sá eyddi tími, sem farið hafði í það: að horfa á gagnslausa hluti í eðlilegum litum. Sú ótilhlýðilega skemmtun, sem var þannig, að við hrukkum svo að segja við, ef nokkur úr söfnuðinum kom þar inn. Það var engum vafa undirorpið, að sjónvarpið hafði flutt heiminn inn í heimili mitt. Jesús sagði ekki neitt. Hann sagði ekki, að þetta væri rangt. Hann sagði ekki, að það væri synd. Hann sagði alls ekkert, og þess vegna fór mér að líða enn verr. Þegar ég stóð þarna hjá Drottni, veitti ég því athygli, sem ég hafði ekki fyrri tekið eftir. Gluggatjöldin, - mundi ég nokkurn tíma gleyma, hve dýr þau voru. Ég hafði leitað í nærri því hverri vefnaðarvörubúð í landinu til að fínna þau, sem ættu við húsmunina og teppið. Slagharpan, hinn yndislegi sálmasöng- ur í sambandi við hana. Eitt kvöld, þegar unga fólkið var þar að syngja, spurði það, hvort nokkur óskaði eftir að láta syngja einhvern sérstakan sálm. Þegar ég stakk upp á því, að við skyldum syngja dýrmæta, kæra sálminn: „Ég er gestur, ég er í útlegð, ég aðeins bý í tjaldi hér,“ þá heyrði ég skemmtilegan ungling hvísla háðslega: „Já, það er bara svona, hann býr að- eins í tjaldi.“ Ég veit ekki, hvers vegna ég fór að hugsa um fagnaðarárið í gamla testamentinu. Fimmtugasta hvert ár komst eignin aftur í hendur fyrri eigenda. Því meir, sem fagnaðarárið nálgaðist, því minna varð söluverðmæti eignarinnar. í huganum gerði ég vörutalningu á eignum mínum og varð að játa, hvað mér viðveik minnkaði verðmæti þeirra eftir því, sem endurkoma Drottins nálgaðist. I dag gat ég notað eigur mínar til að útbreiða fagnaðarerindið. - A morgun gátu þær verið orðnar algerlega verðlausar fyrir mig.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Norðurljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.