Norðurljósið - 01.01.1982, Qupperneq 61
NORÐURLJOSIÐ
61
hann hafði enn ekki verið lluttur í fangelsi fylkisins. Honum var
samt leyft að skrifa honum stuttlega, en það urðu fjórar
blaðsíður. Innihaldið sagði frá kærleika Guðs til okkar, sem var
svo mikill, að hann hafði sent einkasoninn sinn, Jesúm, til að
taka á sig refsinguna, sem við verðskulduðum fyrir syndir
okkar, og til að gefa okkur eilíft líf ásamt honum. Jack sagði
Dennis, að við gætum fyrirgefíð honum, af því að Kristur hafði
fyrirgefið okkur. Við mundum senda honum útgáfu af nýja
testamentinu, sem ætlað væri mönnum, er vilja leiða aðra til
trúar á Krist. Jack sagði Dennis líka, að við mundum biðja fyrir
honum, að hann einnig fyndi Jesúm sem frelsara sinn, er hann
læsi þær ritningargreinar, sem merkt væri við.
Mr. Walt Seemans, skólameistari John Browns háskólans,
var líka Gídeons-félagi. Lét hann alla, sem við skólann voru
riðnir, vita, hvað Jack hafði gjört. I vikunni á eftir fóru tveir
Gídeons-félagar til sýslu-fangelsisins, því að Dennis hafði
verið fluttur þangað. Þrisvar sinnum var þeim neitað um
inngöngu. Fóru þeir þá til heimilis vinar þeirra, sem var
safnaðarhirðir, og báðu þeir saman. Er þeir risu á fætur eftir
bænina, stakk hirðirinn upp á því, að þeir skyldu reyna einu
sinni enn. í þetta skipti var þeim leyft að koma inn.
Er þeir komu inn, var Dennis að lesa nýja testamentið, sem
Jack hafði gefið honum. Hjarta hans hafði heilagur Andi undir-
búið, og mennirnir útskýrðu fyrir honum, hver leiðin væri til
hjálpræðis. Síðan báðu þeir með Dennis. Það voru gleðitár í
biðstofu gjörgæsludeildar, er mennirnir komu til að segjagóðu
fréttirnar. Gídeons-mennirnir fullvissuðu okkur um, að
afturhvarfið væri engin uppgerð, og að Dennis vissi, að hann
væri í sambandi við Guð. Jafnvel í angist okkar gátum við lofað
Drottin.
Þegar leið að lokum annarrar vikunnar, sá Drottinn um, að
Díana fór að komast til meðvitundar aftur. Hægri hlið hennar
var máttlaus vegna heilaskemmda, og hún gat ekki talað. Eftir
þriðju vikuna var hún flutt úr gjörgæslu-deildinni. Randy
hafði ástúðlega og trúfastlega verið við hlið hennar. Hans var
mikil þörf, því að Díana þjáðist af alvarlegu þunglyndi næstu
vikurnar. Hennar eina huggun var sú, að hún hafði eignast nýj-
an bróður í Kristi þar, sem Dennis var. Er hún fór að ná sér