Norðurljósið - 01.01.1982, Page 72
72
NORÐURLJÓSIÐ
Viðtal við
Helga
Hermann
Hannesson
Þ.G.P.
Hann varð sigurvegari í Alþjóðlegri biblíukeppni, sem fór fram
13. júní s.l. í Útvarpinu.
Þú ert íslenskur ríkisborgari. Hvarertu fceddur, og hvaðvarstu
gamall, er þú fluttir vestur um haf til Ameríku?
Jú, ég er íslenskur ríkisborgari, fæddur í Reykjavík. En ég
fluttist fjögurra ára gamall til Bandaríkjanna og ólst þar upp.
Hvað dvaldir þú mörg ár vestra?
Ég lagði það einu sinni saman. Samtals eru það um 18 ár í
Bandaríkjunum svo 10 ár hér á Islandi.
Hvað olli því, að þú fluttist aftur heim til Islands?
Það er dálítið löng saga. Hvar á helst að byrja? Við komum
svona af og til í heimsóknir, þegar ég var 7 og 13 áraeinn vetur,
og þegar ég var 19 ára var ég hér í tvo mánuði. Er ég var 19 ára,
var ég búinn með fyrsta árið í háskóla þar. Herskylda var þá í
Bandaríkjunum, pabbi ferðaðist hingað ’72. Honum datt í hug
- til að forða mér frá herskyldu og að ég færi til Viet-Nam, - að
ég flyttist til íslands og færi í Háskólann hér í stað náms
erlendis.
Þetta var ástæða þess, að ég flutti til Islands 1972. Hóf ég
nám í líffræði við Háskólann.
Þá heyrði ég fyrst fagnaðarerindið um Krist boðað þannig,
að ég skildi það. Tók ég þarna haustið '12 á móti Kristi sem
frelsara mínum. Aðallega var það í sambandi við ungt fólk, sem
ég kynntist úr K.F.U.M. og K.S.S., að ég fór að lesa nýja
testamentið og ræða við þessa kunningja mína. En er ég hafði