Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Qupperneq 53
I’orva'.dur Thoroddsen
53
hvort hinn íslenski einstaklingur, sem við sæmdinni tekur,
heitir Þorvaldur eða f’órólfur, Pjetur eða Páll.
Óneitanlega hefði það verið viðkunnanlegra, að íslend-
ingar hefði sjálfir haft vilja á því, að kanna sitt eigið föður-
land, eins og allar aðrar mentaðar þjóðir gera, en þess hefði
verið langt að bíða, að mjer hefði lánast að snúa huga landa
minna ( þá átt; mjer var því einn kostur nauðugur að leita
til erlendra þjóða, annars hefði allur árangur rannsókna minna
orðið að engu og enginn lifir nema einu sinni. »Vestigia
terrent«. Jeg hafði fyrir mjer dæmi annara íslenskra vísinda-
manna. En jeg hef þá trú, að einhvern tíma ljetti hinni
þungu þoku, sem nú hvílir yfir hinu andlega lífi á íslandi.
Jeg er þakklátur fjárlaganefndinni á alþingi 1899, sem
stakk upp á því í viðurkenningarskyni að bæta 800 kr. við
þær 1200 kr., sem mjer bar í eftirlaun samkvæmt lögum; en
sú uppástunga fekk ekki góðan byr í þinginu. Á móti henni
reru margir öllum árum utan þings og innan; samt marðist
hún í gegn með tveim atkvæðum. Við umræðurnar gat einn
þingmaður þess, að hann vildi ekki veita mjer fjárstyrk í lif-
anda lífi, þótt hann vissi að jeg mundi halda áfram að starfa,
en hann kvaðst seinna meir fús á að gefa atkvæði með því,
að mjer væri settur minnisvarði, þegar jeg væri dauður. f’etta
stórmannlega loforð getur þingmaðurinn því miður ekki efnt,
því hann er sjálfur dáinn (Þorlákur gamli í Fífuhvammi). Síð-
an hef jeg fundið, að margir landar mínir sjá ofsjónum yfir
þessum 800 kr., og er þetta þó hin einasta viðurkenning,
sem ísland hefur veitt mjer fyrir alt mitt lífsstarf.
Þótt jeg fyndi mig knúðan af hinni fyrnefndu grein að
minnast á liðna baráttu fyrir rannsókn íslands, þá dettur mjer
ekki í hug að átelja það eða vanþakka, sem mjer hefur ver-
ið veitt; mörgum öðrum vísindamönnum hefur gengið miklu
ver. En það er vfst, að mjer hefði verið ómögulegt að fram-
kvæma það litla, sem jeg hef gert, nema með tilstyrk út-
landa og svo með því að jeg hef verið svo efnum búinn, að
jeg hef getað sjálfur lagt dálítið af mörkum. Hafi Fjallkonan
haft einhvern sóma af þessu rannsóknarstarfi, er ekki rjett-
látt, að hún þakki sjer það eingöngu sjálfri*.
fetta sumar heimsótti Friðrik VIII. konungur ísland.
Þorvaldur Thoroddsen kom þá til landsins, og hjálpaði
stjórn þess með því að halda fyrirlestur 4. ágúst við
Geysi um hverina fyrir konungi og öðrum gestum íslands.