Réttur - 01.01.1955, Qupperneq 17
RÉTTUR
17
staðinn erlendu stórveldi víðtækan ihlutunarétt um efna-
hagsmál sín.
Land, sem byggir afkomu sína á mikilli utanríkisverzl-
un, lætur narrast til að troða illsakir að tilefnislausu við
beztu viðskiptalönd sín.
Afleiðingarnar eru stórskert fullveldi, stöðvun að mestu
leyti á þeirri nýsköpun atvinnulífsins, er hafin var á árun-
um 1944—46, óheilbrigt atvinnulíf. Og þó má þakka ham-
ingjunni fyrír, að ekki hefur enn verr til tekizt.
Islenzkar forsendur fyrir þessari pólitík eru ekki til.
Hún er einungis aðlögun að kaldastríðspólitík vesturveld-
anna og hefur nú beðið skipbrot með henni. Fátt bendir
þó til, að leiðtogar hinna þriggja stjórnmálaflokka, er
ábyrgð bera á stjórn landsins á undanförnum árum, séu
farnir að skilja þetta. Að minnsta kosti lítur út fyrir, að
Sjálfstæðisflokkurinn ætli að halda dauðahaldi í hinn er-
lenda her sem helzta framtíðarbjargráð hins unga lýð-
veldis.
Sósíalistaflokkurinn hefur einn íslenzkra flokka metið
pólitískt ástand undangengins tímabils út frá íslenzkum
sjónarmiðum, og reynslan hefur sýnt, að hann hefur metið
það rétt.
Hann hefur afhjúpað eðli og tilgang kalda stríðsins,
barizt af alefli gegn þátttöku Islands í því og varað þjóð-
ina við hættunum, sem að steðjuðu. Hann hefur bent á þá
leið, sem ein værí í samræmi við íslenzka hagsmuni, leið
f riðsamlegrar uppbyggingar og góðrar sambúðar við aðrar
þjóðir. Það fer naumast hjá því, að úr þessu fari fleiri
og fleiri að skilja, að þetta er sú leið, sem fara átti, og
sú leið, sem nú er fyrir stafni.
Hinar mörgu þúsmidir landsmanna, er hafa staðið með
Sósíalistaflokknum í baráttu hans öll þessi ár, eiga heiður
skilið fyrir það þrek og þá glöggskyggni, er þær hafa
sýnt. Þær hafa ástæðu til að bera höfuðið hátt. Nú geta
þær í öruggri sigurvissu og með flokk sinn í fararbroddi
hafið nýja sókn fyrir brottflutningi hersins, fyrir úrsögn