Réttur - 01.01.1955, Síða 65
RÉTTUR
65
andstæður öllu stríði nema einu, og því stríði er ég fylgjandi
af lífi og sál og það er hið alþjóðlega stríð þjóðfélags-byltingar-
innar. Ég er reiðubúinn að berjast í því stríði á hvern hátt, sem
yfirstéttin kann að knýja oss til, jafnvel á götuvígjunum“ — sagði
hann eitt sinn.
Þegar rússneska byltingin varð 1917 og ofsóknirnar gegn bolsé-
vikkum hófust í Bandaríkjunum, dróg Debs ekki dul á samúð sína
með byltingu alþýðunnar. Var hann nú ákærður um „landráð o.
s. frv.“ Fyrir dómstólnum lýsti hann yfir þessu: „Ég er kærður
fyrir að láta í Ijósi samúð með Bolshevikkum Rússlands. Ég játa
mig sekan um það.“
Framkoma hans fyrir dómstólnum sæmdi í öllu slíkri hetju
sem Eugene Debs var. Hann gerðist ákærandi stétta-dómstólsins,
er dæmdi hann og var hinn andlegi sigurvegari í viðureigninni
við spillta dómara auðvaldsins ameríska.
14. sept. 1918 var hann, 65 ára að aldri, dæmdur í 10 ára fang-
elsi fyrir andstöðu gegn striðinu og samúð með Bolshevikkum —
sömu „glæpina“ og Stephan G. hafði einnig næstum lent í fangelsi
fyrir.
19. apríl 1919 hóf hann, heilsuveill, að afplána refsingu í Mounds-
ville fangelsi og síðan í Atlanta.
1920 var hann í framboði sem forsetaefni alþýðunnar. En hann
fékk ekki að fara út til að flytja ræður, en Debs var viðurkennd-
ur sem bezti ræðuskörungur Ameríku. Hann fékk 920 þúsund
atkvæði, einhver hæsta atkvæðatala sem nokkur sósíalisti hefur
fengið við forsetakosningar í Bandaríkjunum.
Ameríska auðvaldinu tókst að eyðileggja heilsu hans. Er því
takmarki var náð, sleppti það honum úr fangelsinu, 1921, og
fimm árum síðar dó hann, án þess að hafa náð heilsu aftur.
Eugene Debs er einhver allra hugrakkasti og glæsilegasti verka-
iýðsleiðtogi, sem alþýða Bandaríkjanna hefur eignast.
A aldarafmæli hans er rétt að muna það að nú sitja andlegir
arftakar hans, leiðtogar Kommúnistaflokks Bandaríkjanna, í fang-
elsi dæmdir fyrir sömu „sakir“ og hann, í samskonar ofsóknar-
brjálæði auðvaldsins gegn alþýðunni eins og ríkti 1918. Það er