Réttur


Réttur - 01.01.1955, Page 80

Réttur - 01.01.1955, Page 80
80 RÉTTUR landsins. Þar við bætist svo það sem byggja þarf á nýbýlum, en um þau mun rætt í sérstökum kafla. En af þessu getur hver maður séð hve stórt verkefni hér er óunnið. Og því miður má bæta því við, að síðari árin einkum eftir að byggingarkostnaður hækkaði svo mjög vegna gengisfallsins o. fl. hefur einmitt dregið úr íbúðarhúsabyggingum á eldri býlum og þróunin færst í það horf, að nýbyggingarnar séu hlutfallslega meiri á nýbýlunum. Astæðan er vitanlega eingöngu sú, að hinir vaxandi erfiðleikar vegna stórhækkaðs byggingarkostnaðar, valda því, að þeir sem á annað borð hafa eitthvert húsnæði, þótt ófullkomið sé, reyna að búa í því í lengstu lög. En af því mun aftur leiða það, að eftir tiltölulega skamman tíma verður að gerast mjög stórt átak, á örfáum árum, sem kosta mun mjög mikla fjárfestingu, eða stór hluti þeirra býla sem þannig dragast 'aftur úr fara í eyði, og ójafnvægið í byggðinni vex að sama skapi. Menn gera sér almennt ekki nærri því nógu glögga grein fyrir því, hve allar tafir á eðlilegri þróun eru hættulegar, því þær hljóta að framkalla erfiðleika síðar, margfalda á við bað sem þurft hefði að vera. Sérstaklega þyrftu þeir áhrifamenn, sem hafa þræði þjóðfélagslegra framkvæmda í sínum höndum, að skilja þetta vel, því annars verða stjórnarathafnir þeirra fálm eitt án takmarks. Þetta má segja að í stórum dráttum gildi um íbúðarhúsabygg- ingarnar. Um aðrar byggingar er erfiðara að gera áætlanir. Kemur það af tvennu. I fyrsta lagi eru skýrslur allar um ástand- ið í þeim efnum mjög ófullkomnar, og í öðru lagi kemur þar til greina sú þensla, sem fyrr er á minnst og gerir erfitt mjög að áætla byggingarþörfina. En það mun áreiðanlega óhætt að fullyrða að á því sviði sé enn þá meira og sennilega miklu meira verk óunnið en á sviði íbúðarhúsabygginganna. Þótt hér sé að- eins um fullyrðingu að ræða munu flestir, sem þau mál hafa íhugað komast að sömu niðurstöðu. Kröfurnar sem gerðar eru til vandaðra og heilnæmra fjósbygginga eru t. d. sívaxandi. Er það eðlilegt af heilbrigðisástæðum. Nýjar aðferðir í heyverkun s. s. votheysgerð og súgþurrkun krefjast nýrra og vandaðri bygg- inga yfir heyfóðrið og verður framfaratæknin þannig eðlilega til þess að auka kröfurnar og þörfina fyrir meiri fjárfestingu á þessu sviði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.