Réttur


Réttur - 01.01.1955, Page 88

Réttur - 01.01.1955, Page 88
88 RÉTTUR Og í samræmi við það, sem fyrr er sagt, um vaxandi fólksfjölgun má sízt verða stöðvun í þessum málum og verkefninu verður auð- vitað aldrei lokið. En lítum nú á þróun lánastarfseminnar s.l. áratugi, því út frá henni er helzt hægt að gera sér hugmyndir um framhaldsþörfina. Með stofnun Búnaðarbankans var mikilsvert spor stigið í þá átt, að efla lánastarfsemi landbúnaðarins. Því þótt bankastarf- semi væri þá orðin áratuga gömul, hafði lánsfé þjóðarinnar nær eingöngu verið bundið í öðrum greinum, einkum verzlun og sjávarútvegi. Þetta var í raun og veru eðlileg þróun, a. m. k. hvað sjávarútveginn snerti, því eðli sínu samkvæmt var hann fljótari að ávaxta fjármagnið, og skapa því öruggari grundvöll alhliða tæknilegra framfara í landinu. Hins vegar mátti hverjum heilskyggnum manni vera það ljóst, að þetta hlaut að leiða til þess, að landbúnaðurinn drægist aftur úr í verklegri þróun, og fyrr eða síðar yrði að jafna þau met, eða þjóðartjón hlytist af því ósamræmi, er skapaðist á þennan hátt. I Búnaðarbankanum eru nú þrjár deildir, er stofnlán skulu veita til hverskonar framkvæmda á vegum landbúnaðarins. Þær eru Byggingarsjóður, Ræktunarsjóður og Veðdeild. Þótt mörgum sé kunnugt um, hvernig lánastarfseminni er hagað, þá er mörgum það óljóst og skal því gerð hér lítilsháttar grein fyrir starfsemi hverrar deildar fyrir sig. Gefur það gleggri yfirsýn um starfsemi þessara mála. Skýrslur þær og tölur sem birtar eru, eru annaðhvort fengnar beint frá bankanum eða teknar saman af greinarhöfundi eftir reikningum bankans. Byggingarsjóðurinn hefur starfað síðan 1929. Upphaflega hlaut hann nafnið Byggingar- og landnámssjóður, en í sambandi við fyrirkomulagsbreytingu er síðar var gerð var nafninu einnig breytt. Hlutverk hans er eingöngu það, að lána fé til íbúðarhúsa- bygginga, bæði á nýbýlum og til endurbygginga á eldri jörðum. Hann má aðeins lána gegn 1. veðrétti í fasteign. Fram til ársins 1947 voru nálega allar lánveitingar hans með þeim kjörum að lánin voru veitt til 42 ára með rúmlega 4% vöxtum og jöfnum ársgreiðslum. Var árlegt afgjald 5% af heildarlánsupphæð. (annuitetslán). En með lögunum um landnám og nýbyggðir sem gildi tóku 1947 voru vextir lækkaðir niður í 2% og lækkaði þá hið árlega afgjald um því sem næst einn þriðja hluta eða niður í 3,54 % því sama lánstíma var haldið. Fyrstu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.