Réttur


Réttur - 01.01.1955, Page 122

Réttur - 01.01.1955, Page 122
122 RÉTTUR AFRICA AFRICA A Continent Rises to It’s Feet by Derek Kartun. Bls. 99. Útg. Lawrence & Wishart Ltd. London. Einn svartasti bletturinn á samvizku hins hvíta kynstofns er áreiðanlega meðferð hans á svörtum þjóðum Afríku. Erfitt mun vera að nefna þær tegundir glæpa og hryðjuverka, sem ekki hafa verið framin af hinum hvítu mönnum gegn þeim svörtu. Hitt er þó miklu verst, að ekki er útlit fyrir, að þessum ógnunum sé að linna, fái hinar hvítu þjóðir óhindrað að fara sínu fram, hversu mikið sem þær, hinar svo- kölluðu menningarþjóðir, hæla sér sjálfar af menningu sinni og mannúð. Þótt bók þessi sé ekki stór, hefur hún að geyma geysimik- inn fróðleik um ástand þessara mála fyrr og síðar. Þetta er á margan hátt hræðileg bók. Ekki fyrst og fremst vegna lýsinga á hryðjuverkum og ofbeldi fyrri alda, heldur einkum vegna þeirra ógna, sem sagt er frá að eigi sér stað í þessum löndum nú í dag af völdum hvítra nýlendu- heimsvelda. Við þurfum ekki að nefna nema nokkur nöfn, svo sem Ken- ya, Nigeria, Bechuanaland, Rode- sia, til að minna okkur á stórar og fjölmennar þjóðir, sem hvítir menn kúga svo og arðræna, að þær þekkja ekkert til nútíma menningarlífs, þótt þær búi í auðugum löndum og framleiði með þrotlausu striti mikil verð- mæti. En höfundurinn kann vel til verks. Hann lýsir ekki aðeins hinum dökku hliðum. Við kynn- umst einnig hreyfingum þeim, sem vinna gegn þessu ástandi og sem stöðugt verða sterkari með hverju árinu sem líður. Þessar undirokuðu þjóðir eru að vakna til skilnings á því, að þeim tilheyri þau verðmæti sem land þeirra á og afrakstur þeirrar vinnu, sem þær sjálfar leggja fram. Er við leggjum bók þessa frá okkur erum við öruggari um það en áður, að þrátt fyrir allt þá beri tíminn og þróunin þessar þjóðir fram á leið og samtök þeirra og þrautseigja leysi af þeim ok hins hvíta manns. EASTERN EUROPE In the Socialist World eftir Hewlett Johnson dómprófast. Bls. 279. Útg. Lawrence & Wishart Ltd. 1955. Flestir íslenzkir sósíalistar munu þekkja höfund þessarar bókar að góðu, þar sem hann er einnig höfundur bókarinnar Undir ráðstjórn, sem Mál og menning gaf út í byrjun stríðsins og eins og kunnugt er vakti þá mikla athygli og umræður. Man ég, að ritdómari, sem skrifaði um hana í Helgafell, lét svo um mælt, að margir teldu, að hún hefði haft veruleg áhrif á úrslit kosn- inganna 1942, þegar Sósíalista- flokkurinn vann sinn glæsilega kosningarsigur. En hvað sem um það má segja, þá er eitt víst að Hewlett John- son er einn alþýðlegasti og skemmtilegasti höfundur, sem nú ritar um þjóðfélagsmál, enda liggur orðið töluvert eftir hann á því sviði. Nýjasta bók hans, Eastern
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.