Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 19
andvari
HANNIBAL VALDIMARSSON
17
vestan tók út mikinn þroska á þessum árum og fjörugt félagslíf nem-
enda hefur ekki orðið honum að minna gagni en bóklesturinn. A gagn-
fræðaskólaárunum fór þegar orð af Hannibal fyrir myndugleika og
orðkynngi og sagt var að gustaði af honum á málfundum skólans.6
Áður en Hannibal útskrifaðist frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri
vorið 1922 lést faðir hans vestur á ísafirði. Sennilega hefur það haft
áhrif á framtíðarvonir sonarins, því vegna fjárskorts taldi hann sér ekki
fært að hefja nám við Menntaskólann í Reykjavík eins og margir
skólafélagar hans gerðu. Draumurinn um að taka stúdentspróf og læra
íslensk fræði átti ekki eftir að rætast, og ekki heldur lögfræðinám sem
stóð næst á óskalistanum. Lífsbarátta bamdóms- og unglingsára hefur
án efa lagt grunninn að lífsskoðunum hans sem voru í mótun.
Sá, sem væri lögfræðingur, væri búinn hinum beztu vopnum þekkingarinnar, til
að ná rétti sínum gagnvart ranglætisseggjum og fúlmennum. - Það hélt ég þá.
- Unglingamir ganga nefnilega líka með ósköpin öll af fáránlegum vitleysum
í kollinum, rétt eins og bömin.7
Hvaða drauma sem gagnfræðingurinn Hannibal átti sér, þá lá ekkert
annað fyrir en að vinna sér sjálfur inn peninga ef úr frekara námi átti
að verða. Hannibal ílentist á Akureyri um sinn. Honum bauðst vinna
við virkjun Glerár um sumarið og síðar við endurbætur á skólabygg-
ingu Gagnfræðaskólans uns kominn var vetur og margir bekkjar-
bræður hans famir suður til náms. Þá heimsótti hann móður sína og
systkini á ísafirði í nokkrar vikur, en sneri svo aftur til Akureyrar í
vinnu hjá Sveinbimi Jónssyni byggingarmeistara. Ekki voru tengsl
Hannibals við Gagnfræðaskólann trosnuð, því haustið eftir bauð Sig-
urður Guðmundsson skólameistari honum starf dyravarðar við skól-
ann. Þar var honum bókasafn skólans opið og nýtti Hannibal sér það
vel. Veturinn 1924 mótuðust framtíðaráform hans. Hann varð ráðinn í
að verða kennari.
Fyrir milligöngu Brynleifs Tobiassonar kennara við Gagnfræðaskól-
ann og doktors Jóns Dúasonar sem búsettur var í Danmörku, fékk
Hannibal boð um að sækja um skólavist við Jonstmp Statsseminarium,
elsta kennaraskóla Danmerkur. Rektor skólans, Stig Bredstrup, skrifaði
honum sjálfur og taldi auðsótt að Hannibal fengi inni í skólanum. Ráð-
lagði hann Hannibal að sækja um undanþágu frá inntökuprófi til
kennslumálaráðuneytisins danska og taldi að það yrði auðfengið. Gerði