Andvari - 01.01.2003, Side 47
andvari
HANNIBAL VALDIMARSSON
45
°g fyrri hluta vetrar. Mitt í þessum erfiðleikum voru haldnar bæjar-
stjómarkosningar sem urðu jafnaðarmönnum nokkurt áfall. Þá brast
þolinmæði félaganna í Baldri. Á aðalfundi félagsins í febrúar 1934, þar
sem Hannibal var endurkosinn formaður með 177 atkvæðum en upp-
ástunga kommúnista hlaut 35 atkvæði, var að loknum kosningum lögð
fram tillaga tveggja félagsmanna:
Fyrir illa og ómaklega framkomu bæði í ræðum og ritum um stjómendur
Verklýðsfélagsins Baldur á ísafirði berum við undirritaðir fram þá tillögu, að
neðanskráðum kommúnistum sé vikið úr áðumefndu félagi á aðalfundi þess
í dag: Eyjólfi R. Ámasyni, Halldóri Ólafssyni frá Gjögri, Karítas Skarphéð-
insdóttur og Jóni Jónssyni klæðskera.
Tillagan var samþykkt í leynilegri atkvæðagreiðslu með 117 atkvæð-
um gegn 42. Viðaukatillaga Finns Jónssonar um að fjórmenningamir
héldu vinnuréttindum sínum var jafnframt samþykkt.38 Þannig var
hefnt á heimavelli þess sem miður fór á öðrum vettvangi.
Bæjarstjórnarkosningar 1934 og 1935
Við bæjarstjómarkosningar á ísafirði í janúar 1934 stóðu spjótin úr
tveim áttum á meirihluta jafnaðarmanna í bænum, frá sjálfstæðis-
mönnum og kommúnistum. Árið 1930 var tekin upp sú regla að kjósa
bæjarstjómir á landinu í einu lagi til fjögurra ára. Þá fékk Alþýðuflokk-
urinn hreinan meirhluta, 620 atkvæði, en Sjálfstæðisflokkurinn 381
atkvæði. Síðan höfðu verið haldnar tvennar kosningar til Alþingis,
1931 og 1933, og Alþýðuflokkurinn í bæði skiptin sigrað með nokkr-
um yfirburðum á ísafirði. Vilmundur Jónsson í fyrra skiptið en Finnur
Jónsson það síðara. Þá buðu kommmúnistar í fyrsta sinn fram á Isa-
firði, Jón Rafnsson sjómann frá Vestmannaeyjum, en hann hlaut aðeins
54 atkvæði. Finnur var kosinn með 493 atkvæðum á móti 382 at-
kvæðum Sjálfstæðisflokksins.59 Miðað við þau úrslit var meirihluti
jafnaðarmanna í bænum nokkuð tryggur. Ekki mátti þó mikið útaf
bregða, því Alþýðuflokkurinn þurfti að ná að minnsta kosti fimm
sinnum meira fylgi en kommúnistar til að ná fimm fulltrúum af níu og
halda meirihlutanum.
Við uppstillingu á lista Alþýðuflokksins var viðhöfð sú aðferð að
láta fara fram prófkosningu meðal stuðningsmanna flokksins. Efstur