Andvari - 01.01.2003, Page 66
64
SIGURÐUR PÉTURSSON
ANDVARI
félag Alþýðuflokksins í hreppnum. Meirihluti hreppsnefndar var skip-
aður lista sósíalista og óháðra, en í forsvari hans var Finnbogi Rútur
Valdimarsson, bróðir Hannibals. Þegar kom að síðari kosningunni
skrifaði Alþýðublaðið undir ritstjóm Hannibals óbeina hvatningu til
íbúa Kópavogs um að styðja lista meirihlutans. Varð af þessu mikill
hvellur. Miðstjórn flokksins kom saman og þar lagði varaformaður
fram ályktun um að vísa formanninum frá sem ritstjóra blaðsins.
Afgreiðslu málsins var vísað til flokksstjórnar, sem skipuð var full-
trúum landsbyggðarinnar ásamt miðstjóm. Flokksstjómin tók ekki
afstöðu til málsins heldur vísaði öllum deilum til flokksþings, sem flýtt
var um tvo mánuði og boðað í september.93 Greinilegt var á öllu að
fylgi Hannibals innan flokksins stóð höllum fæti. En hann sá sóknar-
færi í stöðunni og beitti sér nú af alefli fyrir tangarsókn upp vinstri
vænginn.
Forysta Alþýðusambands Islands var í höndum alþýðuflokksmanna
með stuðningi sjálfstæðismanna á árunum 1948-1954. Margir innan
Alþýðuflokksins voru hinsvegar ósáttir við að starfa með „fulltrúum
atvinnurekenda“ í stjórn sambandsins. Alþýðuflokksmenn innan
verkalýðshreyfingarinnar stóðu fast við hlið sósíalista í vinnudeilum,
einkum víðtæku verkfalli haustið 1952, en forysta Alþýðusambandsins
þótti stundum deig í baráttunni. Þegar kom fram á árið 1954 tók
Hannibal opinberlega að berjast fyrir nýrri skipan í forystu Alþýðu-
sambandsins, þar sem hvatt var til samstarfs alþýðuflokksmanna, sós-
íalista og óháðra vinstrimanna. Ekki urðu allir forystumenn Alþýðu-
flokksins ánægðir þegar þessi nýja lína tók að sjást í Alþýðublaðinu
undir ritstjóm Hannibals. Hannibal hélt ótrauður áfram og hvatti
flokkssystkini sín til að taka höndum saman við sósíalista við kjör full-
trúa á þing Alþýðusambandsins haustið 1954. Það haust var tími upp-
gjörs.
Hannibal kunni ekki að vinna með öðrum. eða hafa samráð við einn eða
neinn, heldur sat hann sem ritstjóri flokksblaðsins í Alþýðuhúsinu og bjó til
stefnu flokksins jafnharðan og hann skrifaði leiðara!94
Þannig skrifaði Benedikt Gröndal varaformaður Alþýðuflokksins við
hlið Hannibals 1952-54, og löngu síðar formaður flokksins. Hann
hefur líklega ekki verið einn um þá skoðun að Hannibal hafi „for-
klúðrað“ formennsku sinni í Alþýðuflokknum. Ýmsir sem studdu hann