Andvari - 01.01.2003, Síða 78
76
SIGURÐUR PÉTURSSON
ANDVARI
*
tóku þeir bræður Jón Baldvin og Olafur við ritstjórn vikublaðsins
Frjálsrar þjóðar, sem verið hafði málgagn Þjóðvamarflokksins. Voru
þeir nokkuð áberandi innan Alþýðubandalagsins næstu árin. Amór
skrifaði ennfremur í blaðið og sagt var að Finnbogi Rútur liti stundum
yfir öxlina á þeim úr sófanum á Marbakka í Kópavogi.116 Flestir litu á
Frjálsa þjóð sem málgagn hannibalista, þó að málflutningur blaðsins
væri ekki ætíð til góðs fyrir sambúð Hannibals og sósíalista. Síðar varð
blaðið helsta málgagn nýrrar stjómmálahreyfingar Hannibals og
stuðningsmanna hans.
Uppstillingamefnd Alþýðubandalagsins í Reykjavík lenti í miklum
erfiðleikum við að koma saman lista fyrir kosningamar 1967. Á aðal-
fundi Alþýðubandalagsins í apríl, svonefndum Tónabíósfundi, gerðu
fylkingar upp málin. Deilumar snerust mikið um hvort Jóni Baldvin
yrði stillt upp í annað eða þriðja sæti listans. Naut hann stuðnings
yngra fólks í flokknum auk gamalla stuðningsmanna Hannibals. Nið-
urstaða fundarins varð yngra fólkinu og alþýðubandalagsmönnum utan
Sósíalistaflokksins mikil vonbrigði. Gamli sósíalistakjaminn fékk sitt
fram. Hannibalistar fengu ekkert af sex efstu sætunum.117
Hannibal brást við skjótt. Hann hafði ætlað sér að verða í framboði
í Vestfjarðakjördæmi eins og tvö undangengin kjörtímabil, en sneri nú
hesti sínum og hélt innreið sína í höfuðborgina á ný. Með stuðningi
gamalla félaga og ungs vinstrisinnaðs fólks, sem margt koin úr Há-
skólanum, bar hann fram annan lista í nafni Alþýðubandalagsins.
Sjálfur trónaði hann efstur á listanum, en í öðru sæti var Vésteinn Óla-
son íslenskufræðingur. Eftir mótmæli Alþýðubandalagsins í Reykjavík
fékk listinn bókstafinn I, en ekki GG eins og óskað hafði verið eftir.
Urslit kosninganna urðu þau að Hannibal náði kjöri af I-lista og með
því að atkvæði listans voru talin með Alþýðubandalaginu náði það að
bæta við sig einum uppbótarmanni og ná 10 þingmönnum og 17,6%
atkvæða. En sárin sem opnuðust milli sósíalista og jafnaðarmanna
greru ekki.
Árið 1968, þegar herir Sovétríkjanna og annarra kommúnistaríkja
réðust inn í Tékkóslóvakíu og kæfðu tilraun sem þar var gerð til
lýðræðislegs sósíalisma, var Sósíalistaflokkurinn lagður niður. Árið
sem æskulýður í Bandaríkjunum og Evrópu gekk um götur og torg og
mótmælti stríðsrekstri Bandaríkjanna í Víetnam og barðist fyrir nýrri
þjóðfélagsgerð var Alþýðubandalagið loksins gert að stjómmálaflokki.
Um sama leyti sendi Hannibal Valdimarsson frá sér tilkynningu þar