Andvari - 01.01.2003, Síða 119
ANDVARI
INDRIÐI OG HEIMSFRÆGÐIN
117
Jeg: Getið þjer, sem aldrei hafið heyrt neitt úr því, og aldrei lesið nokkurt orð
í því sagt mjer hvaða scena í því gjörir lukku?
Valvan: Já. Það er scenen þar sem sex manns eru inni í einu, sá 7. stendur
fyrir utan og er á leiðinni inn.
Jeg: Hvað margt af því eru karlmenn og hvað konur?
Valvan: 4 kvennmenn og 2 karlmenn.
Jeg: (Það er trúlofunargildið, hugsaði jeg mjer) Eru fleiri scenur.
Valvan: Svo er scena þar sem ætlar að líða yfir kvennmann og tveir karl-
menn eru hjá henni. Svo þar rjett við er hvítklædd stúlka sem er fram-
úrskarandi falleg.
Jeg: Það er endirinn á 2. Akt.
Valvan: Því er þessi fyrirtaksfríða stúlka svona hvítklædd?
Jeg: Hún er hálf afklædd. - Eru fleiri scenur?
Valvan: Svo er scena sem gjörir mikla lukku, það eru 10 pör í einu, fæst af
þeim segja neitt.
Jeg: Eða kannske 20 pör?
Valvan: Það ber mikið hvað í annað, jeg held 10 pör - ja kannske fleiri. Er
það ball? -Hvað er allt þetta fólk að gjöra í kringum borð sem er á scen-
unni það tekur allt eitthvað af borðinu - Hvað er á því borði?
Jeg: (sem kannast við ballscenuna þar sem Sigurður Þorsteinsson á að fara að
mæla fyrir minni kvenna segi): Sjampavínsglös.
Valvan: Það er þá ekkert í þeim glösum.
Jeg: Það getur verið að þau sjeu tóm.
Valvan: Þessi scena gjörir lukku. Scenan sem jeg sá þar á undan er öðru vísi.
Henni fylgir sterkasta forundrun, menn eru alveg hissa eða höggdofa.
Það gengur fram af mönnum.
Jeg: Hún kemur líklega nokkuð óvænt þegar hún kemur að.
Valvan: Menn verða eins og höggdofa, en lukku gjörir hún.
Jeg: Eru fleiri scenur?
Valvan: Já svo er kærustupar sem gjörir mikla lukku.
Jeg: Hvað er maðurinn gamall?
Valvan: Svona hjerumbil fertugur.
Jeg: Kærustuparið er þá Guðmundur og frú Sigríður.
Valvan: Ja, nú heita þau það? -
Jeg: Jeg get nú hjer eptir á frætt yður um að allar þessar scenur eru til í stykk-
inu, og að þjer hafið lýst þeim svo vel, að jeg þekkti hverja þeirra strax.
Það kalla jeg vel gjört.
Valvan: Þjer vitið að jeg hef ekki sjeð leikritið og að enginn hefur nefnt það
við mig nema þjer, og þjer hafið aldrei sagt mjer neitt úr því. -
Jeg: Svo jeg fæ peninga fyrir það?