Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1889, Síða 33
að pví. Hann var næsta lireykinn yíir starii sínu, og
var auðsjeð að honum fannst hann vera alveg ómissandi.
Hann var hamingjusamur við þennan smávægilega starfa.
Bæði er par saumastofa og skógjörðarstofa, og eru
þar gjörð föt og skór handa öllu heimilisfólki Werners.
J>ar gefst unglingum, er vilja, kostur á að læra þessar
iðnir lijá duglegum kennurum. Teiknunarskóla hefur
verið komið upp handa efnilegum piltum, er ætla að læra
vjelasmiði eða trjesmíði.
Eigi er sjeð síður fyrir menntun stúlknanna. peg-
ar þær eru orðnar 14 ára, verða þær að taka þátt í
ýmsum heimilisstörfum, bæði í eldhúsinu, þvottahúsinu
hakarahúsinu, iatasljettunarstofunni og við fatabætingar,
enda er þar ekki svo lítið að gjöra, þar sem þarf að
hæta og gjöra við föt af 400 manns og matreiða handa
þeirn. Enginn lærisveinn fer burt úr Bræðrahúsinu fyr
en Werner er viss um að hann sje sjálfbjarga. Hver
lærisveinn verður að hafa fulllært að minnsta kosti
eina iðn. Hið sama er um stúlkurnar að segja. J>ær
hafa jafnan aflað sjer slíkrar þekkingar og kunnáttu í
einliverju, að þær þurfa ekki að verða öðrum til þyngsla.
J>að er mikil eptirsókn eptir fósturbörnum AVerners, og
þau komast sjaldan í vandræði með að fá vist og vinnu,
og ef svo vill til, -að eitthvert þeirra er atvinnulaust
um stuttan tíma, veit það, að ávallt er rúm við borðið
hjá gamla AVerner handa því og sæng til að hvíla á.
Werner hefur komið upp kúabúi, til þess að vera
viss um að hafa jafnan góða mjólk, og eru þar 32 kýr
af bezta kyni í fjósi. Mjólkin úr öllum þessum kúm
er höfð til heimilisþarfa í «Bræðrahúsinu», og þó hrekk-
ur hún ekki, svo að mjólk verður að kaupa. Werner
hefur og 6 hesta og 12 svín. Fávitarnir eru látnir
hjálpa til í fjósinu, hæði við að moka það og við mjalt-
irnar. í sjúkrahúsinu hefur «Eösle» gamla nú í fuli
3