Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1951, Page 62

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1951, Page 62
42 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA ég þó að hún væri allrar íhugunar verð fyrir austfirzku sögurnar. Þegar sögum Sigurðar Kristjáns- sonar og Hins íslenzka fornritafélags sleppir, má segja að hin nýja stríðs- bókaútgáfa taki við. Það var að vonum, að bækur, er um langan tíma höfðu verið upp- seldar og ófáanlegar, yrðu fyrst fyr- ir vali til prentunar. Svo var um Fornaldarsögur Norðurlanda, fyrst gefnar út af C. C. Rafn í Khöfn 1829—’30 og löngu síðar af Valde- mar Ásmundssyni 1885—’89. Nýja útgáfan, var, eins og þær eldri, í þrem bindum: I., 1943, II.—III. 1944. Textarnir í þessari nýju útgáfu voru prentaðir eftir útgáfu Rafns, nema þar sem völ var á nýjum út- gáfum betri. Vísurnar voru lesnar saman við útgáfu Finns Jónssonar (Skjaldedigtning A) og stafsetning samræmd á venjulegan hátt. í þriðja bindi eru nokkrar sögur fram yfir það, sem Rafn hafði: Ingvars saga víðförla. Þorsteins þáttr bæjar- magns, Helga þáttr Þórissonar og Tóka þáítr Tókasonar. Guðni Jóns- son samdi inngang að öllu safninu, góða og ljósa greinargerð um forn- aldarsögurnar, loks gerði hann og stuttlega grein fyrir hverri sögu í safninu. Þeir Guðni og Bjarni Vil- hjálmsson sáu báðir um prentun textanna, en Kristján Eldjárn, forn- fræðingur, valdi myndirnar og skrif- aði lýsingar á þeim framan við hvert bindi. Er mikill fengur að hvorutveggja, og sömuleiðis að skrá þeirri um atriðisorð (realia) er fylgir síðasta bindinu. En nafnaskrá vantar. Bækurnar voru gefnar út af Bókaútgáfunni Forni, Reykjavík. Önnur bók, er ófáanleg hafði ver- ið tvo þrjá mannsaldra, var Flai- eyjarbók, prentuð aðeins einu sinni áður af þeim félögum Guðbrandi Vigfússyni og C. R. Unger 1859—’68. Nýja útgáfan var prentuð af Flat- eyjarútgáfunni, Akranesi 1944—1945 í fjórum bindum. Þessi önnur út- gáfa var prentuð eftir hinni fyrstu, með samræmdri stafsetning, nema hvað stafsetning vísnanna var látin halda sér. Þar sem vafi lék á ein- hverju gátu útgefendur borið hina prentuðu útgáfu saman við ljós- mynd þá af handritinu, er Munks- gaard hafði gera látið og prentað 1930 (Corpus Codicum Islandicorum Medii Ævi I). Um hina nýju útgáfu sáu þeir Vilhjálmur Bjarnar og Finnbogi Guðmundsson, tveir ungir norrænufræðingar. Sigurður Nordal reit inngang að hverju bindi fyrir sig Hann hafði borið Orkneyinga- sögu í gömlu útgáfunni saman við handritið og komizt að raun um, að hún var býsna nákvæm. Athuga- semdir Nordals um uppruna og sögu Flaieyjarbókar, um eigandann og fjölskyldu hans, um ritarana tvo o. fl. eru mjög markverðar. Þar sem hin fyrsta útgáfa Flateyjarbókar er nú svo sjaldgæf orðin, var það mikil bót fræðimönnum og bókasöfnum að fá hana gefna út á ný. Þessa nýju útgáfu, þótt alþýðleg sé, má nota til allra hluta nema rannsókna á hljóðfræði og stafsetningu til þess verða menn að fara í hið ljósprent- aða handrit. í desember 1941 gaf Halldór Kiljan Laxness út Laxdælasögu á kostnað Ragnars Jónssonar. Útgáfa þessi var ætluð almenningi til gam- ans og uppbyggingar. Laxness þótt- ist hafa tekið eftir því að hin forna samræmda stafsetning væri mörg- um almúgamanni þröskuldur í vegi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.