Hugur - 01.06.2010, Side 18

Hugur - 01.06.2010, Side 18
i6 Róbert Jack ræðir við Hrein Pálsson og Brynhildi Sigurðardóttur einstæðingsverk og það finnst mér hafa breyst bara síðan ég kom heim úr námi um aldamótin. Þetta byggir ekki jafn rosalega mikið á einstaldingunum núna og áður. Hreinn: Ég man eftir því til dæmis að ég hringdi í nokkra skólastjóra áður en ég stofnaði Heimspekiskólann og bauð þeim þessa frábæru lausn og hvort ég mættí ekki koma og kenna og svoleiðis. Ég man sérstaklega cftir einum, hann gat ekki stillt sig og bara skellti upp úr, hann hélt hann væri að tala við einhvern ... ég veit ekki hvað hann hefur haldið. Svo að staða og virðing heimspekinnar, ég held að hún hafi breyst í gegnum árin. Fólk leit á þetta sem eitthvert fílabeinsturnsdæmi og áttaði sig ekki á jarðtengingunni sem heimspekin getur haft. Róbert: Ertu að segja að virðingin hafi komið með Heimspekiskólanum? Hreinn: Heimspekiskólinn átti þátt í því en auðvitað er fjölmargt annað sem gerðist, til dæmis heimspekikennslan hérna við Háskóla Islands. Þorsteinn [Gylfason], Páll [Skúlason] og kennararnir hérna hafa auðvitað verið mjög öflugir talsmenn heimspekinnar og ég held að heimspekin njóti miklu meiri virðingar í samfélaginu en hún gerði og við skulum ekki gleyma því að kennsla í heimspeki sem sjálfstæðri kennslugrein til BA-prófs hófst ekki við Háskóla Islands fyrr en árið 1972. Brynhildur: Ég held að það skipti miklu máli hvað heimspekin er ung grein á Islandi. Það hefúr ekki verið til mikill jarðvegur. Róbert: Það situr samt í mér sem þú sagðir áðan, Hreinn. Þú sagðist hafa farið í gegnum nám hér en vissir samt ekkert hvað þú varst að gera almennilega þegar kom að samræðunni. Það er ekki fyrr en þú sérð þetta hjá Lipman að þú áttar þig. Þá spyr ég mig hvort við þurfúm ekki að tala um tvo hluti, er ekki alger munur á þessari heimspeki sem er kennd við Háskóla Islands sem sérstakt fag og þeirri samræðu sem þú ert að tala um og er kennd við barnaheimspeki? Hreinn: Jú, það held ég að sé og lykilhugtakið í því dæmi er kannski einfaldlega hugtakið reynsla, því að í barnaheimspekinni gengur dæmið út á það að skapa reynslu. Þú ert með einhverja þá umgjörð og það áreiti að krakkarnir ganga inn í reynsluheim þar sem þeir upplifa að það er hlustað á þá, það er tekið mark á skoðunum þeirra, þeir hafa eitthvað fram að leggja og einhverjir aðrir skipta kannski um skoðun vegna þess sem þeir voru að segja eða halda fram. Hins vegar í akademíunni þá gengur leikurinn fyrst og fremst út á það að tileinka sér hugsun genginna kynslóða. Þú færð mjög góð ritgerðarverkefni þar sem þú þarft að gera grein fyrir lykilatriðum í einhverri kenningu, gagnrýna það eða bera saman við aðrar kenningar o.s.frv. En ég hef efasemdir um reynsluþáttinn. Þetta er öðruvísi en reynslan af þessari tjáningu, lifandi opinni rökræðu sem myndast á staðnum. Róbert: Þú ert að segja að það sem er sameiginlegt gæti verið glíman við viðfangs- efnin og auðvitað rökræða en það er reynsla af þátttöku í samræðunni sem barna-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.