Hugur - 01.06.2010, Page 47

Hugur - 01.06.2010, Page 47
Höggmyndir oggimsteinar 45 sínar og velja þær sökum þeirra sjálfra, og í þriðja lagi að vera öruggur og staðfastur í athöfnum sínum. (nofa)4 Af þessum þremur atriðum, sem eru „skilyrði fyrir dyggðum", segir Aristóteles að þekkingin skipti minnstu máli en síðar kemur í ljós að hyggindin eða siðvitið gegna afar mikilvægu hlutverki í greiningu hans. Aristóteles aðgreinir hana skýrt frá listrænni kunnáttu sem varðar sköpun. „Vissulega skapa hyggindi", skrifar hann, en „ekki eins og læknislist skapar heilbrigði, heldur eins og heilsa skapar heilbrigði". Læknislistin er ekki hluti heilbrigðinnar heldur sú kunnátta læknisins sem getur gert menn heilbrigða. Hins vegar eru hyggindin „hluti dyggðar í heild sinni“ og gera manninn „farsælan með ívist sinni og virkni“ (11443).5 Aristóteles gæti því ekki tekið fyrirvaralaust undir orð Epiktetosar sem skrifar um listina að lifa: „Því eins og viðurinn er efni trésmiðsins og brons efni myndhöggvarans, ein- mitt þannig er líf sérhvers manns viðfangsefni h'fernislistarinnar."6 Frá aristótel- ísku sjónarmiði slær sköpun og dygð of mikið saman í þessum athyglisverða kafla Epiktetosar. Maðurinn er vissulega viðfangsefni sjálfs sín í listinni að lifa en þó með þeim hætti að dygðug athöfn er „sjálf sitt eigið markmið" en sköpun þjónar jafnan „öðru markmiði en sjálfú sér“ (ii4ob).7 Þess vegna eru techné og praxis gagnóh'k fyrirbæri. Afstaða Aristótelesar er afar athyglisverð í þessu samhengi þar sem hann gerir grein fyrir sambærilegri tilurð listar og dygðar, það er með ástundun og ráðagerð um hið breytilega, en gerir jafnframt skýran greinarmun á gildi sköpunarverks og dygðugrar breytni.Til að meta siðferðisgildi athafnar er ekki nóg að h'ta til hennar sjálfrar, hkt og verið væri að meta kosti listaverks, heldur er nauðsynlegt að vita eitthvað um gerandann sem þarf að vera í réttu ástandi: „dyggð er [...] ástandið sem gefur til kynna að rétt skynsemi sé til staðar, og hyggindi eru rétt skynsemi í málum sem varða breytni" (ii44b).8 Með þessari hugmynd um „rétta skynsemi" virðist Aristóteles eiga við að siðferðileg athöfn eigi sér rætur í manni sem tek- ur ákvörðun af ástæðu sem varðar ágæti athafnarinnar sem slíkrar en ekki þess sem hún leiðir til (nema að því er varðar hlutdeild hennar í farsældinni). Þessi hugmynd Aristótelesar um göfúga athöfn er, eins og Christine Korsgaard hefúr bent á, glettilega h'k kenningu Kants um að breyta af skyldu.9 Samkvæmt þess- ari túlkun mætti líta svo á að Ustin að lifa sé fólgin í látlausri sjálfsstyrkingu sem gerir manni kleift að breyta rétt í öflum aðstæðum. I þeim skilningi verði maður „að vinna að höggmyndinni“ sinni eins og Plótínos skrifar með skírskotun til Fædrosar Platons (252D): „Sálina verður að venja og láta hana fyrst horfa á fagurt 4 Aristóteles: Siðfrœði Níkomakkosar, Svavar Hrafn Svavarsson þýddi (Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag 1995), bls. 260-261. 5 Sama rit, bls. 90. 6 Epictetus: The Discourses I, ensk þýð. W.A. Oldfather (London: Loeb Classical Library 1925), xv, 2. 7 Aristóteles: Siðfneði Níkomakkosar, bls. 71. Sama rit, bls. 94. ' Sbr. Christine Korsgaard: „From Duty and for the Sake of the Noble: Kant and Aristode on Morally Good Action“, S. Engström og Jennifer Whiting ritstj., Aristotle, Kant and the Stoics (Cambridge: Cambridge University Press 1996), bls. 217.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.