Hugur - 01.06.2010, Side 54

Hugur - 01.06.2010, Side 54
52 Vilhjálmur Arnason við hugmyndum Kants og hafa þær til marks um þá hlið Upplýsingarinnar sem nauðsynlegt sé að hafna til að hinn sanni gagnrýnisandi hennar nái að blómstra. En sé það hugsun Foucault að fólk þurfi að brjótast út fyrir viðtekin mörk í því skyni að skapa aukið rými fýrir einstaklingsfrelsið þá er vandséð hvernig hann getur með góðu móti hafnað viðleitninni til að móta algildar siðareglur á borð við mannréttindi sem hafa einmitt það hlutverk að vernda sh'k rými. Foucault virðist líta svo á að algildishugmyndin feli í sér eitthvert gefið og kúgandi altækt innihald að hætti miðaldakristni. Sé hugmyndin um algilt siðferði skilin í ljósi hfstíls eða sjálfssköpunartækni, eins og Foucault talar um, fær hún á sig alræðisbrag þar sem einstaklingar yrðu að lúta tilteknum fyrirmælum um hfsmáta.38 En ef við skilj- um hana sem aðferð til þess að verja grundvallarhagsmuni allra borgara jafnt og veita geðþóttamarkmiðum viðnám, þá birtist alhæfingarhugmyndin sem forsenda skynsamlegs sjálfræðis og sanngirni. 5 Það er afar tvíbent þegar Foucault leitar til Forngrikkja eftir viðmiðum fagurfræði tilvistarinnar og umhyggju sjálfsins. Aðalatriðið í fagurfræði tilvistarinnar til forna samkvæmt lýsingu Foucault var að leita ekki viðmiða í fýrirmælum um breytni heldur í sannleikanum um veruleikann og þeim lögmálum h'fshstarinnar sem tóku mið af honum.39 Samkvæmt kenningu Platons laut sú hfernislist jafn- afdráttarlausum reglum og til að mynda læknislist. Höfúðatriði í nútímalegri fag- urfræði tilvistarinnar samkvæmt lýsingu Foucault er aftur á móti að brjótast út fýrir þær takmarkanir sem á menn eru lagðar af félagslegum siðaboðum er hefta frjálsa sjálfssköpun. Sú viðleitni er öðru fremur tilvistarlegt verkefni þar sem ein- staldingar hefja sig yfir umhverfi sitt eða bjóða því birginn án nokkurrar vísunar í siðferðileg viðmið. Einn túlkandi Foucault orðar þetta vel: „Hið fagurfræðilega sjálfsframlag sem slíkt, burtséð frá siðferðilegu inntaki þess, virðist mynda eina grundvöllinn að siðferði sjálfsins."40 Þetta er skiljanlegt að þeirri forsendu gefinni að öll siðferðileg viðmið séu einber félagsleg siðaboð og að skynsamleg rökræða um þau geri ekki annað en að leiða til meiri auðsveipni. Vandi Foucault virðist meðal annars liggja í því að hann greinir ekki nægilega vel á milli spurninganna „Með hvaða hætti skyldi maður takast á við verkefnið?" og „Hver er tilgangur minn með viðleitninni, hvers konar lífi vil ég lifa?“41 Það er vissulega mikilvægt að gera líf sitt að „viðfangsefni flókinnar og erfiðrar sköp- unar“ og í því efni má læra mikið af Grikkjum til forna. En tilgangur þeirra var ekki fagurfræðilegur í þeim skilningi sem Foucault lýsir - að ekki sé sagt spjátr- ungslegur - eins og lífsmáti „dandýsins" (sem Foucault kallar svo eftir Baudelaire) 38 í þessu samhengi er athyglisvert að öndvcrt við Kant tekur útfærsla Sartres á alhæfingarhugmynd- inni einmitt á sig þcssa mynd eins og þetta dæmi sýnir: „ef ég vil kvænast og eignast börn [...] þá skuldbind ég þar með ekki aðeins sjáifan mig, heldur mannkynið allt til einkvænis" (Sartre, Tilvistarstefnan er mannhyggja, bis. 8o). 39 Foucault: The Use of Pleasure, bls. 89. 40 Lois McNay: Foucault. A CriticalIntroduction (Cambridge: Polity Press 1994), bls. 160. 41 O’Leary: Foucault and the Art of Ethics, bls. 85.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.