Hugur - 01.06.2010, Side 150
148
Þóra Björg Sigurðardóttir
mótxin heimspekilegra hugmynda og hugtaka sem komi fram í ákveðinni blindu
heimspekinnar gagnvart lífsreynslu og skoðunum kvenna.9
A nýöld lögðu allmargar konur stund á heimspeki þótt sjaldan sé getið um
þær í yfirlitsritum heimspekisögunnar og þær séu ekki hluti af heimspekikanón-
unni.10 Femínísk greining á heimspeki nýaldar heíur aukist mikið síðustu áratugi,
og hefur leitt til bæði aukins áhuga á heimspeki kvenna og endurmats á verkum
þeirra og viðfangsefnum.11 Þessi sögulega uppgötvun hefur haft tvennt í för með
sér. Annars vegar styrkir hún þá skoðun að söguritun heimspekinnar og kanónan
hafi „étið upp“ hugmyndir og heimspeki kvenna.12 Hins vegar varpar hún nýju
ljósi á sögu heimspekilegra hugtaka og hugmynda.
Rannsóknir á heimspeki kvenna leiða því til ákveðinnar endurskoðunar á hug-
myndum um mikilvægi nýaldartímabilsins í heimspeki og þess sviðs sem það nær
yfir. Sú endurskoðun helst í hendur við almenna uppstokkun í fræðasamfélaginu
á heimspekilegum viðfangsefnum, vali á textum og heimspekingum og áhersl-
una á fræðilegt og menningarlegt samhengi heimspekinga og heimspekitexta.13
Þessi endurskoðun víkkar út sjónarhornið til tímabilsins og kallar ekki aðeins á
lestur annars konar heimspekiverka heldur veltir jafnframt upp þeirri spurningu
hvort þurfi að nota aðrar aðferðir við að lesa og greina heimspekilega orðræðu frá
þessum tíma.14
9 Braidotti 1991:149 og 212-213; Witt 2004:3-8; Coiebrook 2000: 9; Shapiro 2004: 219-226.
10 Kanóna er hugtak sem hefur verið notað yfir það safn rita sem notað er sem viðmið fyrir kennslu,
rannsóknir og sögu viðkomandi fræðigreinar. Kanóna heimspekinnar hefur verið gagnrýnd af
femínískum heimspekingum fyrir að lialda kvenheimspekingum fyrir utan ritsafnið og þar með
vitund heimspekinema og heimspekinga almennt, þrátt fyrir að þær hafi lagt smnd á heimspeki,
gefið út rit og tekið þátt í heimspekilegum rökræðum á sínum tíma.
11 Mörg rit hafa komið út um heimspeki nýaldarkvenna síðustu tvo áratugi og sérstaklega síðast-
liðin tíu ár. Meðal þeirra má nefna: Waithe 1991, Atherton 1994, Nye 1999, van Shurman 1998,
McRoberts 2000, Cavendish 2001, Broad 2002, Astell 2002, de Gournay 2002, Hutton 2004,
Sheridan 2006, Shapiro 2007 og O’Neill (væntanleg). Sjá ítarlegan lista yfir útgefið efhi sxðustu
ár hjá Shapiro 2004.
12 Hér er vísað í hugtakið metaphyúcal cannibalism, sem er komið frá Rosi Braidotti, en í bók sinni
Patterns of Dissonance lýsir hún feðraveldinu á svipaðan hátt og VirginiaWoolf í verki sfnu 7hree
Guineas (1938). Hugtakið lýsir því hvernig feðraveldið nærist á orku, gáfum og vinnuafli kvenna
án þess að geta þeirra eða leyfa þeim að njóta sannmælis (Braidotti 1991: 156). MÖrg yfirlitsrit
lieimspekisögunnar minnast ekki á kvenheimspekinga, sem dæmi má nefna Heimspekisögu
Gunnars Skirbekk og Nils Gilje en þar er því haldið fram að konur hafi ekki verið þátttakendur í
umræðum um „eðli karla og kvenna né um önnur heimspekileg málefni" og ekkert minnst á þær
konur sem fjölluðu um þessi málefni í nafni kvenfrelsishreyfingarinnar. Einn frægasti kvenheim-
spekingur 20. aldarinnar, Simone de Bcauvoir, skrifaði meðal annars um eðli karla og kvenna í
bók sinni Le Deuxieme Sexe (Hittkynið) sem kom út árið 1949 í Frakklandi. Skirbekk og Gilje geta
ckki um hennar framlag. Hins vegar nota þeir orðalag hennar þegar þeir tala um „fiilltrúa „hins
kynsins““ - án þess að vísa til hennar (Skirhekk 1999:572-574 og de Beauvoir 1949).
13 I inngangi að The Cambridge Companion to Early Modem Phi/osophy segir Donald Rutherford að
almennar breytingar á nálgun á heimspekisöguna síðustu áratugi tengist allar áherslunni á það
samhengi sem heimspekin er sprottin úr og þeirri þekkingu sem hún hefixr búið til. Hann útlistar
ferns konar breytingar á þessum nálgunum sem eru tengdar vali á heimspekitextum, heimspek-
ingum, viðfangsefnum heimspekinnar og menningarsögulegu samhengi. Sjá Rutherford 2006:
1-3. Má ætla að margar þessar breytirxgar hafi komið í kjölfar aukinnar ásóknar kvenheimspekinga
og femínista í fræðaheiminn þótt liann bendi ekki sérstaklega á þá staðreynd.
14 Bréfaskipti kalla t.d. á annars konar lestur en hefðbundin heimspekiverk. I þeim felst samræða
eða samskipti milli tveggja einstaklinga sem varpa einnig ljósi á fleiri þætti en afstöðuna til ákveð-
inna heimspekilegra viðfangsefna eins og hefðir, kurteisisreglur, persónueinkenni, kynjamun og
valdamisræmi. Tii þess að koma auga á þessa þætti er ef til vill hægt að nota hugmyndir úr