Tímarit Máls og menningar - 01.12.1972, Blaðsíða 40
Tímarit Máls og menningar
Aumingja veslings tunglatelpan og gamli maðurinn, mikið kenndi ég til í
brjóstinu þeirra vegna. — Júfertukvenmaður aftar í vagninum bauð mannin-
um sæti en tunglatelpan stóð eins og hetja án þess að depla auga, og hún
varð jafnvel ennþá fallegri en áður.
Það er nú annars meira kraðakið í þessum strætisvögnum alla tíma. Þetta
er ekki bjóðandi öðru en sauðfé og trospokum. - Það er kraftaverk hve
mikið má bjóða óléttum konum án þess þær láti fóstrinu. - Það er önnur-
hver kona ólétt, sem ferðast með vögnunum, allt frá sautján ára hnátum
uppí sextugar kynbombur, enda kvað nú mannkyninu fjölga ört. - Allir eru
orðnir hræddir um að þeir troðist undir þá og þegar, eða að ekki verði nóg
til af kartöflum handa ösinni eftir svosem hundrað ár, og fólk sjái sér ekki
annað ráð vænna en deyja úr hungri. - En ég spyr: Til hvers árans eru þá
öll vísindin ef þau geta ekki ræktað rófur og grænkál ofan í mannskapinn
svo ekki þurfi til húngurs að koma? - Við erum þegar farnir að tína okkur
steina til skemmtunar uppi í tunglinu og kannski bráðum ldukkublóm á Marz,
en að hamla svo gegn barnafjölgun á jörðunni, að ekki leiði til tortímingar,
nei, það getum við ekki. Hvílíkir þó óskaplegir kúlakar. - AS drepa allt líf
á jörðunni með einni takkasnertingu, jájá, það getum við, en spara sér að
ofhlaða börnum þenna sama depil sólkerfisins, neinei, það er spekingunum
ofviða. - Ekki skal mig furða þó að Guð með stórum staf nenni ekki að
hanga yfir þessu lengur og sé farinn. - Já, hann er farinn.
22
Ég var að horfa á Fangana í Altona, mynd í Nýja Bíó, gerða eftir leikriti
Sartres. - Hjartanístandi listaverk þar sem helgustur stríðsófreskjunnar birt-
ist manni svo sár sem aldrei fyrr. Þar skelfur mannleg sál í þj áningarfullri
uppreist gegn verðandi þeirri sem við lifum. — Þetta ætti að vera ímyndun
sjúks heila, en er því miður sú veröld sem er okkar. — Það er viðbjóðsleg
veröld.
Það er ofsa stormur og hláka. Og það var Churchill sem var aðalklukk-
ari kalda stríðsins. - Þetta eru að vísu mín orð en ekki annarra - og þó eru
þau sönn. Hann hvatti til að Vestur-Evrópu herirnir héldu áfram í Austurveg
til að útrýma kommúnistunum. En sem betur fór fékk hann ekki orðum sín-
um hljómgrunn, því þó sovézki kommúnisminn sé bölvaður á inargan hátt,
þá eru þó í honum þær taugar, sem mannlífið má illa án vera.
011 blöð heimsins eru nú sneisafull lofgerðar um Churchill látinn, en þetta
á eftir að breytast þó ekki verði um mína daga. - Víst var Churchill mikill