Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1972, Page 168

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1972, Page 168
Tímarit Máls og menningar FINNIST ÞÉR LAGT í RÚSTIR - Náttúrlega segir það' harla lítið, í sjálfu sér, um skáldið Þorstein frá Hamri, eða um ágæti ljóða hans, að hver bók frá hans hendi þykir sæta tíðindum. Hitt er varla tilviljun ein að um það eru ljóðaunnendur ekki allfáir sammála að honum beri sess meðal ágætustu skálda okkar á síðustu árum. Kvæðabók sú, sem hann lét út ganga á síðastliðnu ári, staðfestir að mínu viti þetta álit.1 Það verður, út af fyrir sig,varla sagt að hún komi á óvart í þeim skilningi að í henni sé leitað nýrra leiða um form eða anda; sú eftirgrennslan, sem finna má marga staði í fyrstu bókum Þorsteins, set- ur ekki mark sitt á þessa. Kveðskapur verð- ur ekki metinn eftir hraða nýjunganna og ekki heldur eftir djarfleika tilraunanna, nema síður væri gjarnan. Þorsteinn er löngu fullþroska skáld og, það sem meira er, honum liggur nóg á hjarta að kveða. Fjarri er mér að segja að nokkurrar stöðnunar gæti í þessari bók; vitaskuld eru kvæðin misjöfn að gæðum, en bókin er, í mínum augum, um flest eðlilegur áfangi á markaðri braut. Mörg skýrustu einkenni Þorsteins sem skálds birtast á þessari bók, sum jafnvel afdráttarlausar en í fyrri ljóðabókum hans. Enn sem fyrr er styrkur hans fólginn í skýrum mynd- hvörfum, fullum boðskapar; raunar gerist þess vart þörf að benda á einstök dæmi, en kvæðið Hattar er þó skemmtilega linytt- ið og óvænt, og IJeiðin er gimsteinn. Stíll Þorsteins er afar knappur, orðfár og tungutak agað. Það er háttur hans að stilla orðum sínunt svo í hóf að þau verða því áleitnari sem hugsun og yrkisefni leita ákafar á lesarann. Hins vegar er tæpast á það ætlandi að skáldið komist öllu lengra 1 Þorsteinn frá Hamri: Veðrahjálmur. Heimskringla 1972. 65 bls. á þessari braut. Þetta tungutak virðist bæði inngróið og eðlilegt, en gangi hann feti framar gæti svo farið að mýkt kvæð- anna viki. Þannig fæ eg, til að rnynda, ekki botn í kvæðinu Hvaðan. Kveðskapur er, alla vega, öðrum þræði söngur og mér hefur lengi fundist einfaldleiki og fágun hrynjandinnar einn meginkostur á ljóðutn Þorsteins. Kvæði eins og Frétt og Gunnars- hólmi á þessari bók sýna hvernig strengur- inn er þaninn til ýtrasta, og hinum rétta tóni náð á ntörkum þess að hann bresti. Alveg aukalega verð eg að segja að stundutn er eins og Þorsteinn frá Hamri forðist eigin hagmælsku sína, sent er frá- bær í gamalli, réttri og góðri merkingu þess orðs, en af þeim dæmum sem þessi bók geymir urn hefðbundna kveðandi og ljóðstafi er ljóst að þessi hræðsla er ástæðulaus með öllu, ef hennar er þá rétt til getið. Nefna má Ég bý í deginum, Út- legð eða Einn. Það kentur engum á óvart, sem lesið hef- ur fyrri ljóðabækur Þorsteins, hve miklu táknrænu hlutverki veðurlýsingar gegna í kvæðurn þessarar bókar. Á sama hátt er þess að geta að á bókinni birtast ýmis minni stef, janvel beinar tilvitnanir í gaml- an kveðskap, svo sem í fyrri bókunum. Atvik í fomsögum verða honum enn að yrkisefni, og er fátt fjær lagi en að þessi kvæði tali ekki til lesarans. Grettisfærsla ýngri er skemmtilegt dæmi, eða er Þor- steinn ef til vill að yrkja um sjálfan sig i Stiklarstaðir? Hann telur sig enn eiga Sigurði Breiðfjörð skuld að gjalda (Dönsk lög), en þeim skáldntæringi skulda fleiri sem þó þagað hafa yfir, og skal Þorsteini þökk að meiri fyrir drengskapinn. Það er vissulega bæði ánægjulegt og þó lærdóms- ríkt hve söguefni em í góðri tísku meðal ljóðskálda nú á tíð. Frábærustu söguljóð Þorsteins fram til þessa em, að mínu viti, í fyrri bókum hans, en engu síður en þau 310
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.