Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 54

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 54
de Recherche et de Coordination Acoustique — Musique, þ.e. IRCAM, og var hún hluti Pompidou safnsins/menningarmiðstöðvarinnar. Þar myndu starfa fremstu tónskáld veraldar, í styttri eða lengri tíma, sem létu sig varða nýjar aðferðir við tónsmíðar. Það voru miklir umbrotatímar í veröld tækninnar, tölvur voru að ná yfirhöndinni og gataspjöldin smám saman að hverfa. Tölvuskjárinn var orðinn tengiliðurinn milli augans og tækninnar. Við IRCAM hafði verið byggð risastór tölva sem fyllti heilan sal, og við hana voru tengdir skjáir um alla bygginguna. Við þetta ferlíki var svo tengdur heilmikill hljóðmekanismi sem notaður var í tengslum við rannsóknir og tónsmíðar — allt það nýjasta sem til var í heiminum á þeim tíma. Þorsteinn við störf í IRCAM Árið 1978 birtist heilmikil grein í Newsweek þar sem segir frá þessari nýju stofnun í París. Þorsteinn varð íyrir eins konar uppljómun — þangað þarf ég að fara! Hann skrifaði bréf til IRCAM og sendi með því hljómsveitarverkið sitt, Drengurinn og glerfiðlan. I framhaldi af því bauð IRCAM stofnunin Þorstein velkominn til starfa. Þar dvaldi hann við rannsóknir og tónsmíðar næstu tvö árin, m.a. sem aðstoðarmaður Max Matthews, eins af frumkvöðl- um tölvutónlistarinnar. Meðal deilda stofnunarinnar var svokölluð þvervísindaleg deild, eða ská- striksdeild, sem tengdist öllum öðrum deildum hennar. Það var einmitt við þessa deild sem Þorsteinn starfaði í 2 ár. Yfirmaður hennar var Gérald Bennett, en hann varð síðar yfirmaður Svissneska þjóðartölvustúdíósins. Eins og sagði hér að framan, var í byggingu IRCAM fjöldinn allur af tölvuskjám, ekki bara skjáir sem birtu texta, heldur gátu einnig verið myndir á þeim — grafískir skjáir, sem öllum þykir sjálfsagt að hafa í dag. Þeir voru stórir og hávaðasamir og alls ólíkir þeim sem við þekkjum nú en þóttu á þeim tíma mikil nýjung. Við þessar aðstæður samdi Þorsteinn tölvuverk op. 1 sem heitir Tvær Etýður og er byggt á stýrðri yfirtónauppbyggingu — stund- um kallað spectral tónlist. Verkið er samið m.a. til að sýna fram á hvernig semja mætti verk út frá pressuðum eða strekktum yfirtónum, en það var einmitt það sem rannsóknir hans við stofnunina byggðu á. Þessar tvær etýður eru algjörar andstæður þó svo tæknin við samningu þeirra sé ekki ólík. Um er að ræða verk sem í orðsins fyllstu merkingu eru byggð frá grunni. Hvað á ég við með því? — Jú, hvert einasta hljóð er byggt á sínusbylgjum sem tónskáldið býr til og er yfirtónum síðan hlaðið upp á grunntóninn eítir þeim aðferðum sem fólust í niðurstöðum rannsóknanna — sem eru til skilgreindar í stuttri, en skýrt framsettri ritgerð eftir tónskáldið. 52 TMM 1996:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.