Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Blaðsíða 92
Ólafur Sveinsson
La Fura dels Baus
í Tiergarten, stærsta útivistargarði Berlínar, er sirkustjald sem heitir
Tempodrom. Það eru um tíu ár síðan það var reist þar af konu sem átt hafði
sér þann draum, frá því hún var lítil stúlka, að eignast sirkustjald. Þegar faðir
hennar hrökk upp af og ánafnaði henni álitlegri summu, dreif hún í að gera
þennan draum sinn að veruleika. En hafi hann tengst trúðum, ljónum,
línudönsurum, dvergum og galdramönnum þegar hún var lítil, hafði smekk-
ur hennar breyst eftir að hún varð stór. Undanfarin tíu ár hefur Tempodrom
verið einn skemmtilegasti „tónleikasalur“ borgarinnar. Nick Cave spilar þar
til að mynda á hverju ári, David Byrne var þar um daginn, Les Negresses
vertes fyrir nokkrum árum, Einstuerzende Neubauten, Miles Davis, Scream-
ing Jay Hawkins, B.B. King, Nina Hagen osfrv. svo nokkur af þekktari
nöfnunum séu talin upp. Eini sirkusinn sem ég veit fyrir víst að hefur troðið
þar upp, var franskur kvennasirkus. En nú eru dagar Tempodrom í Tiergar-
ten taldir. Berlín orðin að höfuðborg hins endursameinaða Þýskalands,
þinghúsið Reichstag í næsta nágreni og það vantar lóðir undir skrifstofuhús-
næði kanslaraembættisins. En það er ekki aðeins Tempodrom sem á eftir að
hverfa úr Tiergarten þegar valdið heldur endurinnreið sína í þetta gamla
þinghús keisara og síðar Weimarlýðveldisins og Hitler lét brenna sem frægt
er af spjöldum sögunnar og kenna kommúnistum um.
Tiergarten
Það má segja að Tiergarten, þessi gamli veiðigarður Prússakónga, endur-
spegli sögu Þýskalands og sögu valdsins þar síðustu tvöhundruð árin eða
svo. Lengi vel mátti lýðurinn ekki leggja leið sína þangað svo aðallinn gæti
veitt þar í friði. Þýskalandskeisari átti þar sumarhöll (veiðihús) Schloss
Bellevue, sem forseti hins endursameinaða Þýskalands er nú að flytja í. Hitler
lét sigursæla heri sína marsera á breiðstrætum gegnum garðinn. Eftir stríð
var Tiergarten í jafn mikilli rúst og borgin. Þau fáu tré sem eftir stóðu voru
felld og kurluð í eldivið og svangir borgarbúar breyttu honum í einn stærsta
kartöflugarð landsins. Byrjað var að rækta hann upp á sama tíma og efna-
90
TMM 1996:2