Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Síða 57

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Síða 57
elodi“ eins og þekkt er frá Webern. Verkið er einn allsherjar hugmyndafleyg- ur; það líður fram í víddum alheimsins. Sem hljóðfæri notar höfundur m.a. kristalsglös sem leikið er á með boga og einnig er leikið á symbal og xylófón með boga. Við það nýtir hann hið háa tíðnissvið sem ekki næst með hefðbundnum leik á hljóðfærin. Að loknu þessu verki hefst fjögurra ára hvíldartímabil frá tónsmíðum. Sem vísindamaður og tónskáld var ástæða til að staldra aðeins við, líta um öxl og meta stöðuna. Þessi faglega endurskoðun fór fram með lestri bóka og upprifjun á ýmsum tæknilegum atriðum sem höfðu verið viðfangsefni undangenginna ára. Þorsteinn hætti sér að nýju út á tónsmíðabrautina árið 1987 með verkinu Tokkata fyrir gítar, sem hann samdi fyrir hinn virta gítarleikara Josef Ka- Cheung Fung, en hann hefur leikið þetta verk víða, bæði í Evrópu, Kína og síðast vorið 1994 í Tokyo — einnig hefur Arnaldur Arnarson flutt verkið mjög víða; í New York og Suður-Ameríku og einnig nýlega á íslandi. Til gamans má geta þess að verkið fékk á sig innflutningsbann Sameinuðu þjóðanna, þ.e. verkið var pantað til flutnings í Serbíu í miðju stríðinu, en vegna banns Sameinuðu þjóðanna þorði höfundur ekki að fara og vera viðstaddur flutninginn. Hér er um að ræða þrælerfitt verk sem bauð upp á ýmsar nýjungar á þeim tíma. Þannig er, að Þorsteinn var ansi lipur rafmagns- gítarleikari á árum áður þegar hann lék með hljómsveitinni Tatarar. Þor- steinn var hljómborðsleikari hljómsveitarinnar, en færri vita að hann var aðal Jimmy Hendrix gítarleikari á íslandi á fyrri árum. Á efnisskrá hljóm- sveitarinnar voru mörg Hendrix-lög og þegar kom að því að leika hina erfiðu sóló kafla þá stökk Þorsteinn af Hammondinum yfir á gítarinn og þeytti sólóunum yfir tárvotar yngismeyjarnar. Er ekki laust við að finna megi einhver Hendrix-áhrif í þessu verki og eru þau meðal nýjunga sem koma þar fyrir í klassískum gítarleik — eitthvað sem menn kölluðu á árum áður „röff trix“. Eftir heimkomuna frá Stanford árið 1987 bauðst Þorsteini að koma til Aþenu í Grikklandi og semja raftónverk í stúdíói þarlendra. Þorsteinn þáði boðið en brátt kom í ljós að tæki þeirra voru — vægast sagt — ákaflega gamaldags og því augljóst að ekki var hægt að semja sannfærandi verk þar á staðnum. Hvað var til ráða? í einu herbergi þessa tónlistarvers rakst Þorsteinn á fullt af segulbandsspólum. Þannig var að forstöðumaður stofnunarinnar var með upptökudellu — nánast allt hans fjölskyldulíf hafði verið hljóðritað. En þessi della hafði fleiri víddir. Þarna voru samankomnar á einum stað upptökur, stærsta safn sinnar tegundar í heiminum af grískri þjóðlagatónlist. Það voru upptökur af munkasöng í Norður - Grikklandi, upptökur af einstökum TMM 1996:2 55
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.