Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 63

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 63
Árni Óskarsson Tjara, fiður og rifin þök Spjallað við Hilmar Jensson jazztónlistarmann Tónlist gítarleikarans Hilmars Jenssonar hefur borist eins og hressilegur gustur inn í staðið loft íslensks jazzlífs. Hann hefurfarið sínar eigin leiðir í tónlistinni ogá heiður skilinn fyrirýmsa tónleika á undanförnum árum ogstórmerkilegan geisladisk, Dofinn, sem út kom sl. haust. Diskurinn var hljóðritaður íNew York og leikaþar með honum auk Skúla Sverrissonar bassaleikarafjórirBandaríkja- menn úr tilraunageira jazzins, altsaxófónleikarinn Tim Berne, sem senthefur frá sér plötur undir sínu nafni í hálfan annan áratug og er sífellt að nema ný lönd sem tónskáld, tenórsaxófónleikarinn Chris Speed, altsaxófón- og bassaklarinettuleikarinn Andrew d’Angelo og trommuleikarinn Jim Black. Allir hafa þeir áður spilað með Hilmari á tónleikum hér heima, en þeir þrír síðast- nefndu leika saman í hljómsveitinni Human Feel sem nú þykir með þeim efnilegri á sínu sviði, ef marka má jazztímarit á borð við Down Beat. Tónlistin á diskinum er afar fjölskrúðug og byggist að miklu leyti áfrjálsum spuna sem skrifað efni Hilmars bindur satnan. Hilmar sem nú er um þrítugt lærði undirstöðuatriðin í gítarleik afföður sínum þegar hann var sex eða sjö ára, en síðan var ekkert framhald á þvífyrr en hannfluttist til Svíþjóðar tólf ára gamall og lærði svolítið í klassík „en var voðalega latur“, að eigin sögn. Á unglingsárunum í Svíþjóð lék hann í rokk- hljómsveit um tíma. Eftir að hann flutti aftur til íslands 1982 stofnaði hann rokkkennda fusion-sveit ásamt Matthíasi Hemstock sem hét Singultus, en það er latína ogþýðir hiksti. Umþetta leytifór hann að læra hjá Birni Thoroddsen. Þáfór að kvikna alvöru jazzáhugi og hann komst að því að hann réð ekki við að spila það sem hann langaði til án þess að læra eitthvað. — Á þessum árum þótti mér sjálfsagt að semja músík, sagði Hilmarþegar ég spjallaði við hann á dögunum. — Ég hlustaði til dæmis mikið á Mike Oldfield um skeið og mér þóttu þessi löngu verk hans afskaplega spennandi. Ég fór að semja verk í þeim anda sem voru ekki ýkja merkileg en firna löng. Á þessum tíma fannst mér líka mjög gaman að spila, en ég hef off hugsað um það síðan hvað nám gerir úr allri þeirri orku sem við svona spilamennsku losnar úr læðingi. Fólk hefur kannski ofboðslegan áhuga á tónlist en þegar það reynir að bera sig eftir meiri fróðleik er eldmóðurinn drepinn niður. Þeir TMM 1996:2 61
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.