Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 79

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 79
verk. Ólíklegt er að sambærilegt rit verði samið í nánustu framtíð. En það gerir veikleika þess því alvarlegri.1 Hobsbawm skiptir tuttugustu öldinni hinni styttri í þrjú tímabil: tíma hamfara (1914—1945), gullöldina (frá seinni hluta fimmta áratugarins til fyrri hluta þess áttunda eða til 1973) og tíma skriðufallsins, frá upphafi efnahagsörðugleikanna á fyrri hluta áttunda áratugarins til hruns Sovétríkj- anna árið 1991. Hinar augljósu vestrænu forsendur þessarar skiptingar í tímabil eru líklega það fyrsta sem fær lesandann til að staldra við: þrátt fyrir að Hobsbawm fullyrði að allur heimurinn sé til umfjöllunar og þrátt fyrir verulegan skilning hans á þróun mála í öðrum heimshlutum fer ekki á milli mála að hann leggur megináherslu á skin og skúrir í hinu fornfræga hjarta vestursins, Evrópu. Hamfaratíminn markast af hruni ríkjaskipunar álfunnar árið 1914 og heimsstyrjöldunum tveimur sem rekja má til þess. Gullöldin er öðru fremur blómaskeið hins blandaða hagkerfis og velferðarríkisins sem leiddu til ótrúlegrar endurreisnar Vestur-Evrópu, og — upp að vissu marki — tímabils félagslegra og efnahagslegra framfara, sem virtist geta umbreytt stjórnvöldum í austurhluta álfunnar 1 verðugan keppinaut Vestursins; að síðustu vísar myndlíkingin um skriðuna til nýtilkominnar kreppu á Vestur- löndum, efnahagslegrar, félagslegrar og menningarlegrar. Það kom í ljós að ríkjandi hugmyndafræði og stofnanir voru nánast ófærar um að takast á við vandann en einnig að—líklega það sem Hobsbawm þótti skipta mestu máli — hefðbundnar lausnir vinstrimanna á Vesturlöndum reyndust úreltar. Frá þessu sjónarhorni virðist kommúnisminn nálgast endalok sín á fleygiferð samhliða hægfara hrörnun í vestri, frekar en að um tímamót sé að ræða eins og sjálfsöruggir frjálshyggjumenn telja. í þeim skilningi lýkur tuttugustu öldinni hinni styttri með ábendingu um að frekar sé að vænta alvarlegra vandamála en þess að annar hvor þeirra tveggja krafta sem bitist hafa um vald yfir örlögum hennar hafi betur. Heimssaga sem stæði betur undir nafni þyrfti að tengja þessa vestur-evr- ópsku sýn við gjörólík viðhorf frá öðrum sjónarhornum eins og Bandaríkj- um Norður-Ameríku (þar sem ekki er hægt að tala um skörp skil á milli tímabils hamfara og gullaldarinnar sem á eftir kom) og Sovétríkjunum (Hobsbawm hefur ýmislegt markvert að segja um Sovétríkin en eyðir ekki miklu máli í sovésku samfélagsgerðina sem alheimsfýrirbæri). í þessu sam- hengi þjóna áðurnefndar hugleiðingar aðeins sem baksvið þeirra röksemda sem ég hef hugsað mér að útfæra nánar. Þær snerta hugmyndina um „öld öfga“ og það sem í henni felst. Hugtakið gefur til kynna að rökrétt eða virk skautamyndun hafi stýrt sögu tuttugustu aldar hinnar styttri. Þrátt fýrir það virðist Hobsbawm tregur til að koma hreint fram með fræðilegar forsendur sínar en til að koma mynd á þær neyðumst við til að tína saman ýmsar TMM 1996:2 77
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.