Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 80

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 80
vísbendingar úr texta bókarinnar. Fyrst ber að nefna þá tilhneigingu til skautamyndunar sem ég hef verið að ræða og innbyggð er í skiptingunni í tímaskeið; muninn á „tímabili hamfara“, sem afhjúpar með sérlega áhrifa- ríkum hætti vanhæfni ríkra og voldugra samfélaga til að ráða fram úr eigin málum og hafa stjórn á eigin sköpunarverki, og svo gullöldinni, sem með svipuðum hætti sýnir getu þeirra til að jafna sig og ná aftur áttum og endurheimta eitthvað af því valdi sem glatast hafði. Síðasta tímabilinu — skriðufallinu — er ekki hægt að lýsa nema til bráðabirgða þar sem enn er með öllu óljóst hvort það reynist vera undanfari endurtekningar á fýrri eða seinni möguleikanum. Almennt talað getum við skýrt „öld öfga“ sem tíma þar sem máttur mannsins hafi vaxið gífúrlega, bæði til sköpunar og eyðileggingar, þessi öld gat af sér tæknilegar og skipulagslegar úrlausnir sem gerðu kleift að hefja allsherjar stríð og í framhaldi af því uppgötva kjarnorkuvopn, en hún fóstraði einnig vísindalegar og tæknilegar framfarir sem leiddu til þess að lífsskilyrði stórs hluta jarðarbúa tóku meiri fr amförum en áður hafði þekkst. Annað sem nefna má er að áhrifa skautamyndunarinnar gætti í þeim alþjóð- legu hugmyndafræðilegu átökum — Hobsbawm vísar til þeirra sem trúar- bragðastríða — sem mótuðu stjórnmálasögu aldarinnar. Sjálf rússneska byltingin, sem var eins og fram hefur komið bein afleiðing fyrri heimsstyrj- aldarinnar, lagði grunninn að nýrri samfélagsgerð sem storkaði veldi Vest- urlanda um víða veröld. Þessum átökum fylgdu um tíma önnur og meiri: þó að fasísk stjórnvöld og hreyfingar véfengdu vestræna samfélagsskipan á mun þrengra sviði en kommúnisminn var fjandskapur fasista við menning- arlegar hefðir hennar þeim mun meiri. Það má að nokkru rekja til þess að andstæðingar þeirra sem áður gátu ekki á sátts höfði setið tóku saman höndum. Nú hafa báðar útgáfur alræðishyggjunnar runnið sitt skeið á enda og stuttu öldinni er lokið með óvæntri stefnubreytingu lýðræðinu í hag — svo að sumir þeirra sem kannað hafa málið hneigjast til að líta á lokasigur þess sem sjálfsagðan hlut og jafna honum við endalok sögunnar. Jafhvel þó að við tökum ekki undir þessa gegndarlausu bjartsýni (eitt af því sem læra má af Hobsbawm er að vera okkur meðvituð um hversu flókin og brothætt hin félagslegu skilyrði lýðræðisins eru) getum við fallist á að tíð, sem fæddi til að byrja með af sér áður óþekktar myndir öfgafullrar harðstjórnar, hafi nú snúist á sveif með lýðræðinu, enda er það nú ríkjandi víðar en áður hefur þekkst og enn víðar viðurkennt í orði. Mikilvægur þáttur í því sem Hobsbawm kallar „öld öfga“ virðist vera tilurð mjög ólíkra formgerða félagslífs og stjórnmála, og árekstrar milli þeirra. Við gætum haldið áfram upptalningu dæma um skautamyndun. Hobsbawm nefnir hinn sláandi mun á þróun lista og vísinda á tuttugustu 78 TMM 1996:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.