Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Page 93

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Page 93
hagsundrið þýska var að komast á fullan skrið seinnipart 6. áratugarins. Herir vestur- veldanna plömpuðu þar í gegn einu sinni á ári til að minna austrið á veru sína. Og á undanförnum árum og áratugum hefur maður getað gengið í gegnum einskonar þverskurð Vestur-Berlínsks samfélags á góðviðrishelgum að sumarlagi í Tiergarten. Þar hafa Tyrkirnir helgað sér staði í nágrenni Schloss Bellevue fyrir stóríjöl- skyldurnar og grillin, þannig að oft leggur þykkan mökk yfir væntanlegan bústað forsetans. Hommar og lesbíur hafa fundið sér flatir í námunda við Sigursúluna (Die Siegesseule) sem stendur eins og risastór reður í garðinum miðjum, með sigurengil á toppnum í staðinn fyrir sigri hrósandi kóng. Reyndar stóð hún lengi vel framan við Reichstag, enda reist í tilefni af sigri Þjóðverja á herjum Napóleóns III Frakkakóngs og sameiningu þýsku ríkjanna. Það var Adolf heitinn Hitler sem lét síðan færa hana á núverandi stað svo sigursælir herir hans gætu arkað í breiðfylkingum hjá þessu stolta tákni þýskrar karlmennsku. Núdistar dreifa úr sér á nokkrum stöðum í garðinum, gamla fólkið kýs ákveðna bekki fremur en aðra, mæður með börn og helgarpabbar hittast hjá stærsta leikvellinum, ástfangin pör halda sig gjarnan dálítið afsíðis í skugganum af stórum trjám. Á flötinni framan við Reichstag er spilaður fótbolti, nema þegar blæs, þá koma íjöl- skyldufeður með flugdreka og þykjast gera það fyrir börnin, sem fá þó sjaldnast að halda í spottana sjálf. Og á flatirnar framan við Haus der Kulturen der Welt (Hús menningarsamfélaga heimsins), þar sem stöðugt eru sýningar, leikhópar, bíómyndir, fyrirlestrar, tónleikar osfrv. frá hinum ýmsu heimshlutum og ætlað er að vinna gegn fordómum og stuðla að gagnkvæmri virðingu milli mismunandi menningarsamfélaga, safnast hinir ólíku þjóð- félagshópar saman á góðviðrisdögum um helgar og eyða deginum í sátt og samlyndi. Já, Vestur-Berlín var sú borg í Þýskalandi sem komst næst því að vera multikulturell samfélag eins og var í tísku að tala um skömmu áður en múrinn féll. En nú eru allir búnir að gleyma þessu háleita markmiði, eftir að Þýskaland varð aftur eitt land og Þjóðverjar ein þjóð og nýnasistar fóru að gera sér það til dundurs að berja útlendinga í spað og kveikja í flóttamanna- heimilum. Og Haus der Kulturen der Welt verður endurskýrt þegar skrif- stofublækur þingsins flytja þar inn, Tyrkirnir hraktir burt með grillin sín svo reykurinn angri ekki forsetann enda bannað að vera með opinn eld í TMM 1996:2 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.