Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Page 96
Annars er alveg einkennilegur þessi masókismi fólks, ætli Aristóteles hefði ekki nefnt það kaþarsis (hreinsun), að láta yfir sig ganga skammir og svívirðingar um hvað það sé nú slæmt og vont og vonlaust og kinka kollinum því til samþykkis, skelfingu lostið yfir hvað þetta er nú allt satt og rétt og njóta þess í botn að það skuli loksins einhver koma sem sér ekki aðeins í gegnum það, heldur þorir líka að segja það uppí opið geðið á því. Hvort La Fura dels Baus á að einhverju leyti þessum effekt frægð sína að þakka eða fremur hinum að telja sig verða vitni að einhverju nýju og ögrandi, að vera innvígður í einskonar bræðralag þeirra sem ekki aðeins þora, heldur líka gera með því að fara á sýningar þeirra, skal ósagt látið. Staðreyndin er engu að síður sú að La Fura dels Baus er með þekktustu leikhópum Evrópu og hefur á undanförnum árum farið í leikferðir um allan heim og unnið til verðlauna á fjölmörgum leiklistarhátíðum. Og það þrátt fyrir, eða öllu heldur vegna þess að hópurinn er ekki að þóknast einhverjum ímynduðum áhorfendum eða sprengja upp formið til þess eins að búa til fallegar en innantómar myndir í einskonar fagurfræðilegri sjálfsffóun leikstjórans, eins og maður verður býsna oft vitni að í leikhúsum hér í Þýskalandi. í sýningu sinni M.T.M , skammstöfun sem minnir reyndar býsna mikið á MTV, notar La Fura dels Baus stafræna tækni á virtúósan hátt til að sýna hversu hættuleg þessi tækni er, trúi maður blint á það sem framleitt er með hennar tilstuðlan. Og það er kannski því sem hópurinn á frægð sína að þakka, eða gerir hann allavega áhugaverðan, að hann snýr ekki bakinu við nútím- anum í allsherjar heimsósómaformælingum, heldur notar sér þá möguleika og þá tækni sem til staðar er, til að sprengja upp þá gömlu og íhaldssömu stofnun sem leikhúsið óneitanlega er, til að sýna að þrátt fyrir breyttar ytri aðstæður sé mannskepnan alltaf sjálfri sér lík. Af fjölmiðlum Digitaltæknin, upplýsingaþjóðfélagið og það aukna vald sem fjölmiðlar, einkum þó sjónvarpið hafa fengið fyrir hennar tilstuðlan, hefur ekki orðið til þess að opna augu fólks íyrir sjálfu sér og því umhverfi sem það lifir í, nema þá að mjög takmörkuðu leyti. Maður getur á vissan hátt sagt að allt þetta upplýsinga og myndaflóð slævi fremur en hitt, eða hvað ætíi börnin í Biafra, sem voru notuð árum saman til að terrorísera mann með uppblásna maga svo maður kláraði af disknum sem hamsatólgin var storknuð á og maður varð að skafa úr gómnum eftir hvern munnbita, dygðu lengi á þau börn sem nú eru að vaxa upp? Mér er sem ég heyri: „Æi pabbi...“ eftir viku eða í mesta lagi hálfan mánuð. Sá sem ræður yfir fjölmiðlunum hefur einnig ótrúlega mikið vald, samanber hinn ítalska Berlusconi, en vel að merkja vald 94 TMM 1996:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.