Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 107

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 107
Ég býst við að lexían af þessu öllu sé þessi: Aldrei vera hræddur við neðan- málsgreinar. Svona hljóma tilvikin sex þar sem Flaubert minnist á augu Emmu Bovary í allri bókinni. Þetta er greinilega efni sem honum hefur þótt skipta dálitlu máli: 1. (Emma birtist fyrst) „Að því marki sem hún var fögur lá fegurð hennar í augunum: þó að þau væru brún, gátu þau virst svört vegna augnhár- anna (...)“ 2. (Lýst af aðdáunarfullum eiginmanninum skömmu eftir brúðkaupið) „Honum virtust augu hennar stærri, sérstaklega þegar hún var rétt að vakna og deplaði augunum nokkrum sinnum í röð; þau voru svört, þegar hún var í skugga og dökkblá í fullri dagsbirtu; og þau virtust búa yfír hverju laginu af öðru af litum, sem voru þykkari að blæ dýpra undir og urðu bjartari er nálgaðist glerjungskennt yfirborðið.“ 3. (Á dansleik við kertaljós) „Augu hennar virtust jafnvel svartari.“ 4. (Þegar hún hittir Léon fyrst) „Hún festi á honum sjónir með stórum, galopnum, svörtum augum sínum.“ 5. (Inni, eins og hún birtist Rodolphe þegar hann horfir fyrst á hana) „Svört augu hennar.“ 6. (Emma lítur í spegil inni að kvöldlagi; hún hefur rétt verið forfærð af Rodolphe) ,Augu hennar höfðu aldrei verið svo stór, svo svört né búið yfir eins mikilli dýpt.“ Hvernig orðaði gagnrýnandinn þetta aftur? „Flaubert byggir ekki upp persónur sínar með hlutlægum, ytri lýsingum, eins og Balzac. Svo kærulaus er hann reyndar um ytra útlit þeirra að ( . .. ).“ Það gæti verið fróðlegt að bera saman þann tíma sem Flaubert varði í að fullvissa sig um að hetja hans hefði hin sérstöku og erfiðu augu harmrænnar hórkonu og tímann sem dr. Starkie varði í að gera lítið úr honum, í kæruleysi sínu. Og svo er eitt að lokum, bara til að reka á þetta smiðshöggið. Elsta veigamikla heimildin um Flaubert er Souvenir littéraires eftir Maxime du Camp (Hachette, París, 1882-1883, tvö bindi); slúðurkennd, hégómleg, full af sjálfsréttlætingu og óáreiðanleg, en þó sögulega mikilvæg. Á blaðsíðu 306 í fyrra bindinu (Remington & Co., London, 1893, þýðanda ekki getið) lýsir du Camp í smáatriðum konunni sem var fyrirmyndin að Emmu Bovary. Að sögn hans var hún önnur eiginkona herlæknis frá Bon-Lecours, í grennd við Rúðuborg: Þessi seinni kona var ekki fögur; hún var lítil og hafði daufgert, gult hár og andlit hulið ffeknum. Hún var fúll af sýndarmennsku og fyrirleit eiginmann sinn og áleit hann fífl. Hún var allvel í holdum og bjartleit, húðin stóð hvergi á beini og í holningu hennar eða TMM 1996:2 105
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.