Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 130

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 130
dregur / iðu og elfarstreng“ (21), þráir hann að verða heill á ný. Dauðanum verður gamall strokudrengur að mæta heill maður. Og aftur verður lesanda hugsað til Péturs Gauts. Nátengdar þessu hálfa lífi í nútíman- um eru minningarnar. Fyrst gerast at- vikin, á eftir koma orðin og umskapa veruleikann í skáldskap, eins og lýst er í „Strokudreng V“ (25): Ekki fyrr en úr fjarlægð sástu, og langt um seinan, hve skært stjörnurnar skinu, heitar, undrandi yfir því broti úr stund. Mörg áhrifamestu ljóðin í bókinni eru minningaljóð. Fortíðin sækir að, og myndir hennar, ilmur og tónar vekja ekki alltaf þægilegar kenndir. Sá sem tal- ar er fangi á eyju í tímanum, íðilgrænni, „með troðningum, bröttum og tæpum“ í „Minningu" (41), að vísu án íjötra en þó er leikhjúpur æskunnar „orðinn að spennitreyju“. Dularfullt og sakbitið er ljóðið „Það sem ekki varð“ (42) — en „er í veðrinu síðan / og gefur löngum / lífs- mark sitt í skyn!“ 1 „Mannfundum" reikar hann vegvilltur við „nið, sem af harmi“ (43). Minningareitir hans eru sölnaðir af vanrækslu í „Afþreyingar- sögum frá 1892“ (44), og í „Hjarni“ er ort um menn og fjöll sem „bera í giljum og leynum / harðfennisdíla / sem aldrei tekur upp“, vegna þess hvað þeir bregð- ast nauðugt við birtunni (50), — líkt og vonin sé tryggari böndum bundin við ótiltekna, skærari eldri sól. Huggunin er ástin. Hún er líka í fortíð- inni en ekki týnd, vegna þess að henni var forðað á skóga, eins og segir í „Sögu- ljóði“ (48), undan höfðingja gleymsk- unnar, tímanum. Myndhverfingin er undurfalleg: Og þegar dægrin: sendimenn jarls, hafa sviðið hvert rjóður, hvem runn ber ilm hennar yfir til efstu stunda. Þegar hingað er komið verður senni- legt að það séu einmitt minningarnar sem tala í trjánum í ljóðinu sem geymir titil bókarinnar og gert var að umtals- efni hér í upphafi. Án tvíveðrungs I fýrsta ljóði bókarinnar biður skáldið þess við skógaraltarið, að það megi orða hugsun sína skýrt: að allar sífellur og samfellur í tilhaldssemi orðs og æðis léttu sér upp af lund minni — já, jafnt hin ábúðarfulla launung sem allir sýndarhimnarnir ... Ekki þarf vanur ljóðalesandi oft að fletta upp í orðabók við lesturinn, og ekki verður Þorsteinn sakaður um tilgerð í stíl, þó að bregði fyrir hátíðlegri fleirtölu í stöku ljóði. Hann talar við hlustanda sinn í alvarlegum en þægilegum rabbtón. En ekki er þar með sagt að ljóðin séu opnar, ljósar staðhæfingar, eins og öldin krefst að mati skáldsins, og nái beint til lesanda. Og skáldinu finnst kannski hlægileg von að honum, berg- þursinum, takist það, því í næstu línu upphafsljóðsins segir hæðnislega: „Ó, taktbundna yfirskin!“ Ljóð sín fléttar Þorsteinn eins og í fýrri bókum sínum úr vísunum í skáldskap, sögu og bók- menntir allra alda, auk þess sem hann notar eigin tákn, og enginn utanaðkom- andi getur ímyndað sér að hann komist til botns í merkingu þeirra. 128 TMM 1996:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.