Skírnir - 01.01.1963, Blaðsíða 93
Skímir
Úr sögu skinnbóka
85
bæði skrifuð af sama manni; í því fyrra er bókstafurinn ð
fagurlega skrifaður þar sem hann á að vera (sjá bréf nr. 46
í Ed. Arn., Supplementum, vol.l. Islandske originaldiplomer
indtil 1450, Faksimiler, udgivet af Stefán Karlsson. Koben-
havn 1963), en í því síðara víðast hvar (sama rit, nr. 47),
svo að auðséð er, að til hafa verið ð-ritarar á þeim tíma. Að
þessu athuguðu virðist því eðlilegast að setja ritunartíma 62
kringum 1370.
Texti ÓlTr í 62 er náskyldur þeim sem varðveittur er í
Flateyjarbók, en þó er hvorugt handritið skrifað eftir hinu,
heldur eiga þau sameiginlegt foreldri. Sá sem þessa gerð ÓlTr
setti saman, hefur stytt texta sögunnar þar sem honum þótti
frásögnin ekki svo mjög koma Ólafi kóngi við, svo sem í kafl-
anum um Jómsvíkinga og Færeyinga, sögu Hallfreðar vand-
ræðaskálds, frá landnámum á íslandi og víðar. Hins vegar
hefur hann sums staðar aukið við, þar sem sagt er frá kristni-
boði Ólafs kóngs, og víðar þar sem hann er við sögu, og mun
það tekið eftir langloku þeirri sem Gunnlaugur munkur Leifs-
son á Þingeyrum (d. 1218) setti saman á latínu af kristni-
boðskónginum, af lítilli sannleiksást, en þeim mun meiri guðs-
ótta, að haldið er laust fyrir 1200. Þessar viðbætur eru flest-
ar óhemjuleiðinlegar. Einnig hefur höfundur þessarar gerð-
ar sögunnar aukið inn Noma-Gests þætti og Helga þætti
Þórissonar, og sé honum vel fyrir það. En þeim sem sagði
fyrir hvað skrifa skyldi á Flateyjarbók, hefur þótt þessi saga
Ólafs kóngs stuttaraleg á köflum; hann hefur því stundum
lagt hana til hliðar, en gripið til annarra bóka: sérstakrar
Jómsvíkinga sögu, Færeyinga sögu, Orkneyinga sögu, Hall-
freðar sögu o. fl., og hefur tekið þaðan fyllri texta, svo að nú
varð Ólafs saga lengri en hún hafði nokkru sinni verið áður.
Þannig hefur sumt úr sögum þessum varðveitzt í sinni upp-
runalegu gerð, t. d. kaflar úr Færeyinga sögu, sem annars
mundi líklega glatað með öllu, og hefur bókmenntasmekkur
mannsins sem þessa gerð ÓlTr setti saman, þannig orðið til
mikillar blessunar, enda þótt hann sé ekki hátt skrifaður hjá
velflestum mönnum. Því miður hafa rúmlega tveir fimmtu
hlutar ÓlTr í 62 glatazt, en svo langt sem það nær, er hægt