Skírnir - 01.01.1963, Blaðsíða 97
Skímir
tJr sögu skinnbóka
89
ritari Flateyjarbókar hefur haft tvö handrit af Norna-Gests
þætti og hrærir texta þeirra dálítið saman. Þetta mál hef ég
ekki rannsakað nægilega gaumgæfilega, enn sem komið er,
og verður hér látið óútkljáð, hvort Norna-Gests þáttur og
Helga þáttur Þórissonar eru í 62 skrifaðir eftir sama forriti
og aðrir hlutar handritsins, eða eftir annarri bók; aðeins skal
ég geta þess að mér þykir síðari kosturinn fullt svo sennilegur.
Einstöku kver voru stundum lánuð úr bókum sem ekki voru
bundnar, en stundum var þeim líka stolið (sjá Handritaspjall,
bls. 31—34). En þegar ritari 62 hefur fengið í hendur það
sem vantaði í bók þá sem hann skrifaði eftir, hefur hann
fljótlega séð, að það var meira en svo að það gæti staðið á
hálfu öðru blaði; hann bætir þá í kverið eins mörgum blöð-
um og hann telur nægja, skrifar auk þess smærra en áður og
styttir kaflann úr Hallfreðar sögu, til þess að vera viss um að
allt komist fyrir. En reikningslist hans hefur skakkað, svo að
rúmlega fjórar blaðsíður urðu eftir auðar.
Milli þriðja og fjórða kvers í 62 vantar eitt blað, en það
er fyrsta blað fjórða kvers, sem nú eru í tíu blöð, og vantar
þá í það yzta tvinnið (1. og 12. blað; ég kalla hér tvinn það
sem á dönsku er nefnt bladpar). Á eftir fjórða kveri kemur
stór eyða, og vantar þar 16 blöð, ef reikningslist mín er rétt.
Þar af hefur eitt átt heima í fjórða kveri, eins og áður er sagt,
en sennilega hefur svo týnzt heilt kver með 12 blöðum í og
3 blöð af fimmta kveri, sem nú er aðeins 6 blöð, og vantar þá
einnig 3 blöð aftan af því. En þar sem ÓlTr endar á síðustu
blaðsíðu í 62, bendir það heldur til að handritið hafi aldrei
verið lengra, nema ef vera skyldi að síðasta blaðið hafi verið
autt, og mundu þá hafa verið 8 blöð í aftasta kverinu, en 14 í
því næst síðasta. Ýmislegt annað bendir þó til að svo hafi ekki
verið. Er þar fyrst að telja að aftasta blaðsíðan er undarlega
lítið skemmd og allt öðruvísi og fallegri en yztu blöðin í þeim
kverum sem enn eru heil, og bendir það til að týnzt hafi
aftan af bókinni, og að sú blaðsíða sem nú er öftust, hafi ekki
verið það á þeim áratugum sem verst var farið með bókina.
I öðru lagi er bókin í óvenjustóru broti, miðað við þykkt henn-