Skírnir - 01.01.1963, Blaðsíða 96
Ólafur Halldórsson
Skímir
bó
þar sem Þorleifs þáttur kemur ekki á nokkurn hátt við sögu
Ölafs kóngs, verður að teljast sennilegast að hann hafi aldrei
staðið í 62, en sé, eins og mörgum öðrum þáttum, fyrst skot-
ið inn í ÖlTr í Flateyjarbók.
1 öðru kveri bókarinnar eru 12 blöð, og vantar ekkert milli
þess og þriðja kvers, en úr þriðja kveri hefur verið skorið
eitt blað, sem verið hefur 11. blað kversins. Þriðja kver hefur
þá upphaflega verið 16 blöð, en það má heita eins dæmi að
kver séu svo stór í íslenzkum skinnbókum. Á tíunda blaði
þessa kvers er aftari dálkur forsíðunnar aðeins 13 línur, en
síðan er óskrifað; aftari blaðsíðan er auð og sömuleiðis fremri
blaðsíða næsta blaðs, en hér í milli var blað það sem skorið
var úr bókinni, og hefur það væntanlega einnig verið óskrif-
að. Þessar auðu blaðsíður eru á milli Helga þátts Þórissonar
og upphafsins á kaflanum úr Færeyinga sögu.
Óvenjuleg stærð þessa kvers og auðu blaðsíðurnar munu
eiga sér sömu orsök. Kverið hefur upphaflega verið 12 blöð.
Af einhverri ástæðu hefur ritarinn stanzað þegar hann var
búinn að skrifa 6. blað kversins, en þar var hann í miðjum
kapítula í Hallfreðar sögu (síðustu orðin á blaðinu: ‘því að
þau Auðgísl áttu ekki barn’, sbr. útgáfu Bjarna Einarssonar:
HallfréSar saga, Kbhvn 1953, bls. 9215—le, og íslenzk fornrit
VIII, bls. 176, 1. 20). Síðan hefur hann skilið hálft annað blað
eftir autt,, en byrjar svo á Færeyinga sögu, og hefur ætlað sér
að skrifa það sem þar var í milli síðar. Sennilega hafa blöð
(eða jafnvel heilt kver) úr bók þeirri sem hann skrifaði eftir,
verið týnd eða í láni, sem ekki er ósennilegt, því að á þeim
blöðum var Norna-Gests þáttur, er menn hafa sótzt eftir. En
annaðhvort hefur ritari 62 fengið þessi blöð seinna, ellegar
hann hefur skrifað það sem vantaði eftir annarri bók. f kafl-
anum úr Hallfreðar sögu er skyldleiki 62 og Flateyjarbókar
mjög svipaður og annars staðar í ÓlTr, og bendir það ekki til
að ritari 62 hafi skipt um forrit. 1 Norna-Gests þætti og Helga
þætti Þórissonar er erfiðara að koma samanburði við, vegna
þess að þættirnir eru ekki í öðrum handritum ÓlTr, nema
ungri viðbót við ÁM 54 fol. (þar skr. eftir handriti af sama
flokki og 62, Flateyjarbók), en í öðru lagi er þess að gæta að