Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Side 47

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Side 47
Kvennaguðfræði og kynbundin túlkunarfræðileg ritskýring óhlutstæð gildi, fræðastefnur og alhæfingar sem ekki taka mið af skilyrðum sögunnar, til þessa getað verkað eins og hula yfir hið karllæga sjónarhom til jafns við þær feðrahverfu vitundarmyndir sem fyrirfram hafa bæði ákvarðað hvemig tilveran er túlkuð og hvemig textinn er lesinn. Ef grannt er skoðað, hefur hið mennska verið lagt að jöfnu við hið karllega, sem hið almenna, raunar í harla takmörkuðu gervi, háðu reynsluheimi vestrænnar, hvítrar viðstéttar. Krafan um að huglægnin sé meðvituð og gaumgæfin er því að hluta, krafa um að talað sé hreint út og þekkilega um tilvera manna og margbreytilega fleti hennar og að hluta, krafa um að sú mannvera sem fær útleggingu á lífi sínu sé ófrávíkjanlega tengd líkama sínum, kyni og félagslegum samhengjum, í samræmi við hvaðeina sem það ber með sér, með hliðsjón af menningar- og stjómmálalegum frávikum útlegginga. Þegar Páll tjáir sig um manninn í bréfum sínum, talar hann eindregið um mann í sinni eigin mynd. Eigi að túlka ummæli Páls má hvorki dylja þetta háttalag né heldur gera það að engu með útskýringum, þvert á móti verður að gera það skiljanlegt. Þetta á að gera með vitund um að reynsluheimar karla og kvenna voru ekki aðeins afar ólíkir á tímum Páls, heldur era það enn í dag þó svo að nú getum við sagt að muninum sé stýrt á annan hátt. Sú gaumgæfni sem krafist er, er þannig tvíþætt og tekur bæði til innihalds textans, í þessu tilviki texta Páls, og til huglægni nútímans hjá þeim sem útleggur hann. Sé ekki orðið við kröfunni, er hvort tveggja hulið, hið karllæga og hið feðrahverfa í textanum og útleggingu hans og því meir sem talað er með almennum hætti um hið mennska á þessum granni, því meiri mun mismununin verða í veraleikanum sem leiðir til undirokunar, — félagslega, stjómmálalega og kynferðislega. Þetta er ástæða þess, að stórir hlutar kvennaguðfræðinnar hafa helgað sig túlkunarfræði sem vísindakenningu og aðferðafræðilegri umræðu á heimspekilegum og mannfræðilegum grunni með hliðsjón af kynferði, eins og aðrar kvennarannsóknir gerðu allan 9. áratuginn. Markmiðið hefur verið að huglægnin yrði meðvituð og að hún endurspeglaðist skýrt aðferða- fræðilega, án þess að rýma þannig aðeins fyrir sjálfdæmis-hyggjunni. Það er jú augljóst í þessu efni að mikil hætta er á því, að nú verði stokkið jafnfætis beint úr öskunni í eldinn, þ.e. frá hlutlægni til huglægni og samkvæmt því verði áhuginn á sérleik kvenna, gerður að markmiði í sjálfu sér, sem mótvægi við feðrahverfa hefð guðfræðinnar og kannski beinlínis sem nauðsynlegt mótefni við karllægri útleggingu tilverunnar sem allt til þessa hefur verið sú eina er tekin hefur verið gild. Annars vegar er aðeins unnt að iðka kvennaguðfræði af einum saman huglægum áhuga sem á sér rót í lífsvanda kvenna og láta sig, af þeim sökum, varða lífskjör kvenna með sérstökum hætti. Hins vegar má ekki gera sérleik kvenna að markmiði í sjálfu sér því það felur í sér huglægni sem verður sjálfhverf og leitar einungis staðfestingar á sjálfri sér. Jafn nauðsynlegt sem það er, að huglægni kvenna fái nú rými og tóm til hvors tveggja, útleggingar á lífinu og lesturs texta, jafn nauðsynlegt er, að það gerist með túlkunar- og aðferðafræðilega gaumgefnum hætti. 45
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.