Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Side 49

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Side 49
Kvennaguðfræði og kynbundin túlkunarfræðileg ritskýring Það er auðvitað enginn vafi á, að þar sem konur koma fyrir í frásögnum fagnaðarerindisins er um það að ræða að viðteknar markalínur eru rofnar sem er athyglisvert. Ekki er heldur hægt að neita því að unnt er að draga fram ótvíræða viðurkenningu á konum í allmörgum þeirra tilvika þar sem konur koma fyrir. Jesús gefur konum og kjörum kvenna sérstakan gaum. Hann talar í aÚra augsýn við konu þó staða hennar sé vafasöm; Jóh. 4:1-42. Hann telur konur meðal sinna nánustu vina; Jóh. 11:1-44 og 12:1-11. Hann staðfestir rétt konu til að hafa andlegar þarfir og gefa sig að trúarlegum hugðarefnum; Lúk. 10:38-42. Hann kemur nauðstaddri og sjúkri konu til hjálpar; Lúk. 7:11-17 og 13:10-17. Hann gerir þetta jafnvel án þess að skeyta um ákvæði lögmálsins um hreinleika; Mark. 5:25-34 (og samst. hliðst.). Hann fyrirverður sig ekki þegar hann fær það hlutskipti að hjálpa útlendri konu; Mark. 7:24-30 (og samst. hliðst.). Jesús hefur einnig augastað á erfiðum kjörum kvenna í feðrahverfu samfélagi þar sem hjónabandið var eina leið þeirra til að komast af og þar sem iðkan hjónaskilnaða einkenndist af frjálslyndi og miðaði að því að tryggja aðeins hagsmuni karlsins; Mark. 10:1-12 (og samst. hliðst.). En í öllum þessum dæmum er mikilvægt að spurt sé, hvort erindi fagn- aðarboðskaparins sé annars háttar í frásögnum af því er Jesús hittir konur en þegar hann hittir holdsveika, tollheimtumenn og aðra sem voru glataðir eða félagslega utangarðs. Eða hvort erindið sé ekki einmitt hið sama, eða það að sýna Jesúm sem þann er fer yfir markalínur, leitar uppi hið glataða og miðlar þeim guðsríki sem í þessum heimi eru án vonar. í frásögninni af konunni sem læknuð er af blóðlátum sínum í Mark. 5:25-34, er tilefni til að gefa því gaum að hún er í bókstaflegri merkingu send út úr félagslegu rúmi frásagnarinnar og inn í guðsríki sem dóttir í nýskapaðri fjölskyldu Guðs. Frelsisfyrirheitið sem konan fær, á sér hliðstæðu í frásögninni af lækningu Bartímeusar blinda í Mark. 10:46-52. Þessi maður sem bæði á sér nafn og stað heldur kyrru fyrir félagslega. Þrátt fyrir að Jesús sendi hann á brott er ný staða hans í frelsi ekki sett upp utan frásagnarinnar heldur þvert á móti í eftirfylgd við Jesúm. Þannig kemur hér fram munur á yfirbragði frelsiskjara konunnar og karlsins sem endurspeglar muninn á félagslegum skilyrðum þeirra eftir kynferði. Það er munur sem sannast við samanburð á frelsi kon- unnar og lækningunni á dóttur samkundustjórans, sem frásagan um konuna með blóðlátin er felld inn í; Mark. 5:21-24, 35-43. Stúlkan sem er 12 ára, er vakin til að halda áfram lífinu í húsi föður síns sem kynþroska og gjafvaxta dóttir hans. Dóttir Jaírusar tekst þannig á hendur líf fiillvaxinnar konu sem konan með blóðlátin yfirgefur í frelsi sínu. Jaíras og hús hans er hinn félags- legi rammi utan um framvindu lífsins fyrir dótturina, konan getur hins vegar gengið á brott því hún heyrir guðsríki til í frelsi sínu. Það er greinilegt að frásögnin af konunni með blóðlátin geymir ótvíræða viðurkenningu á konum. Það er þó ekki um að villast, að hún geymir líka kynbundna takmörkun og skorður kvenna. Því hér er um að ræða dæmi um kvenfrelsi sem hefur forsendu, harla ákveðið kerfi félagslegra viðmiðana og gildishugtaka sem háð era kynferði og koma karlinum og gjafvaxta dóttur hans til góða en veita, í félagslegum kringumstæðum frásagnarinnar, ekki 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.