Jón á Bægisá - 01.12.2010, Page 106

Jón á Bægisá - 01.12.2010, Page 106
Marteinn Liíther—Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir hendi reiður á og gefi slíkt líf og réttlætingu, því skyldi maður þá ekki líka tala þannig? Það er ekki villukenning að trúin ein hendi reiður á Kristi og gefi lífið. En villukenning skal það heita ef einhver segir slíkt eða talar um það. Eru þeir ekki galnir, glórulausir og frávita? Þeir gangast við réttmæti málefnisins en refsa þó fyrir umræðu um sama efni sem röng væri; enginn hlutur má samtímis vera bæði réttur og rangur. Það er heldur ekki ég einn, né er ég sá fyrsti, sem segir að trúin ein réttlæti. A undan mér höfðu Ambrosius,1 Ágústínus2 og margir fleiri sagt þetta. Og sá sem ætlar sér að lesa og skilja heilagan Pál hann hlýtur vissu- lega að samsinna þessu og getur ekki annað. Orð hans eru of afdráttarlaus og þola ekkert verk, alls ekkert verk. Sé þar ekkert verk, þá hlýtur þar að vera trúin ein saman. Ó, það væri nú aldeilis fín, nýtileg og meinlaus kenning ef fólkið lærði að meðfram trúnni gæti það einnig orðið frómt fyrir verkin. Það væri eins og að segja að það væri ekki eingöngu dauði Krists sem fjarlægði syndir okkar, heldur bættu verk okkar þar einhverju við. Það væri góð leið til að sýna dauða Krists sóma, að verk okkar hjálp- uðu til og gætu áorkað því sama og hann, þannig að við værum jafnokar hans að afli og kostum. Það er djöfullinn sem ekki getur látið hjá líða að vanvirða blóð Krists. Með því að nú er ljóst að kjarni málsins sjálfs krefst þess að maður segi: „Trúin ein saman veitir réttlætingu“ og eðli þýska málsins eins og okkur hefur verið kennt að tala það krefst þess líka — hef ég að auki fordæmi hinna heilögu kirkjufeðra og hina knýjandi hættu sem vofir yfir fólkinu að það geti ekki slitið sig frá verkunum og fari á mis við trúna og glati Kristi, sérstaklega nú orðið, af því það hefur vanist við verkin svo lengi og það verður að slíta það laust frá þeim með valdi: Þar með er það ekki einungis rétt, heldur bein og brýn nauðsyn að kveðið sé fast og greinilega að með því að segja: Trúin ein saman án verka gerir mann fróman; mig iðrar mest að ég skuli ekki líka hafa bætt við „alle ‘ og „aller“ [,,allra“], sem sagt: „Ohn alle Werk aller Gesetz [,,Án allra verka allra lögmála“], þannig að það væri hljómmikið og hreint þegar það væri mælt af munni fram. Þess vegna skal það haldast í Nýja Testamentinu mínu og megi allir páfaasnar verða galnir og glórulausir, þeir skulu ekki fá mig ofan af því. Nóg um þetta að sinni. Seinna hyggst ég, ef Guðs náð lofar, ræða þetta frekar í kverinu De iustificatione.3 Um hina spurninguna, hvort hinir sálugu dýrlingar biðji fyrir okkur. 1 Þýð.: Biskup í Mílanó, d. 397. Einn af kirkjufeðrunum. 2 Þýð.: Heilagur Ágústínus frá Hippó í Afríku, d. 430. Merkastur kirkjufeðranna og áhrifamesti guðfræðingur kristinnar kirkju næst á eftir Páli postula. 3 Þýð.: Þýska: „Von der Rechtfertigung" eða „Uin réttlætinguna“ sem Lúther kláraði aldrei. 104 d ,ý3ay/'iá' — Tímarit um þýðingar nr. 14 / 2010
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.