Jón á Bægisá - 01.12.2010, Blaðsíða 109
Sendibréf um þýðingar (1530)
við líka að segja að þeir séu ekki á villigötum og þar með sé ekki hægt
að refsa þeim fyrir lygar eða villu því kristindómurinn hafi þetta svona.
Þannig er því engin pílagrímaferð röng, sama hversu augljóslega skrattinn
sé þar með í för, ekkert aflát óréttmætt, sama hversu gróf lygi sé viðhöfð.
I stuttu máli: þarna er eintómur heilagleiki. Því skuluð þið svara þessu
til: Við erum ekki að fást um það núna hver sé fordæmdur eða ekki for-
dæmdur. Þið blandið þessum óviðkomandi málum inn í til að afvegaleiða
okkur frá því sem skiptir okkur máli. Við erum að tala um Guðs orð núna;
hvað kristindómurinn sé eða geri á heima annars staðar. Málið snýst hér
um hvað sé orð Guðs og hvað ekki. Það sem orð Guðs er ekki er heldur
ekki kristindómur.
Við lesum að á tímum Elía spámanns hafi ekki verið neitt opinbert
guðsorð né nein guðsþjónusta hjá allri Israelsþjóð, sem hann segir: „Herra,
þeir hafa drepið spámenn þína og rifið niður ölturu þín og ég er algjörlega
einn.“' Hér myndu Akab konungur og aðrir hafa sagt: Elía, með svona tali
kallar þú fordæmingu yfir alla þjóð Guðs. En Guð hafði þrátt fyrir allt
skilið sjö þúsund eftir.1 2 Hvernig? Heldurðu ekki að Guð geti núna líka í
páfadómi varðveitt sína menn, þrátt fyrir að klerkalýðurinn og munkarnir
hafi í kristninni verið eintómir djöfulsins útsendarar og séu komnir til
helvítis? Mörg börn og ungt fólk hefur dáið í Kristi; því Kristi hefur tekist
með staðfestu að varðveita skírnina undir falskristi3 og auk þess einfald-
an texta fagnaðarerindisins í predikunarstólnum og Faðirvorið og trúna
þannig að hann mætti með því varðveita marga af sínum kristsmönnum
og einnig sinn kristindóm og ekki sagt útsendurum djöfulsins neitt frá
því.
Og þó að kristnir menn hafi ótal sinnum framkvæmt ýmsa hluta
hinna pápísku hryllingsverka þá geta páfaasnarnir ekki fært sönnur á að
hinir ástkæru kristsmenn hafi gert það gjarnan, enn síður er þar með sann-
að að hinir kristnu menn hafi gert rétt. Kristnir menn geta gert mistök
og syndga allir sem einn, en Guð hefur líka kennt þeim öllum að biðjast
fyrirgefningar á syndum sínum í Faðirvorinu og hefur klárlega veitt þeim
fyrirgefningu synda sem þeir hafa drýgt óviljugir, óafvitandi og tilneyddir
af antíkristi og þó ekki sagt klerkalýðnum eða munkunum frá því. Það
1 Þýð.: Fyrri konungabók 19:10 — IB’07, GT bls. 421: „Hann svaraði: „Af brennandi ákafa
hef ég lagt mig fram vegna málefnis Drottins, Guðs hersveitanna, því að ísraelsmenn
hafa snúið frá sáttmálanum við þig. Þeir liafa rifið niður ölturu þín og drepið spámenn
þína með sverði. Ég er einn eftir og nú sitja þeir um líf mitt.““
2 Þýð.: Fyrri konungabók 19:18 — ÍB’07, GT bls. 421: „En ég mun skilja sjö þúsund eftir 1'
ísrael, hvert kné sem ekki hefiir beygt sig íyrir Baal og hvern munn sem ekki hefur kysst
hann.“
3 Þýð.: Hér á Lúther við páfa(dóm) sem hann leit á sem falskrist, andkrist eða antíkrist.
á- Ég kann að þýða; það kunnið þið ekki.
107