Skírnir - 01.04.2013, Page 130
128
RÓSA MAGNÚSDÓTTIR
SKÍRNIR
höfum séð er hjónabandið mjög stór hluti af sjálfsmynd bæði Þóru
og Kristins — þá fannst henni hún oftar andlegur jafnoki karlanna
en hinna eiginkvennanna. Þetta var t.d. mjög greinilegt þegar þau
hjónin heimsóttu danska rithöfundinn Martin Andersen Nexo í
mars 1948. Þóra lýsti því í smáatriðum hvernig þau Kristinn fengu
höfðinglegar móttökur hjá skáldinu og sátu fram eftir og ræddu
heimsmálin og pólitíkina yfir víni en hún tók líka fram: „Kona
Nexo er mjög ungleg. Hún hafði ekki tíma til að sitja hjá okkur,
þurfti að fara að vinna, eins og hún sagði.“ Þóra var sjálf mjög vel
að sér um stjórnmál og listir og lagði greinilega mikið upp úr því að
vera viðræðuhæf um ýmis málefni en þó að hún lýsti heimili gest-
gjafa sinna á jákvæðan hátt í dagbókinni fannst henni greinilega ekki
mikið til konu Nexo koma. Hér verður þó að taka fram að þriðja
eiginkona Nexo, Johanna May (f. 1902), var þýsk og þótt hún væri
töluvert yngri en eiginmaður hennar (f. 1869), var hún einungis um
sex árum yngri en Þóra.9 Og þó svo að þennan dag hafi finnska
ljóðskáldið Arvo Turtiainen einnig verið í heimsókn hjá Nexo þá tók
hún sérstaklega fram að þau fjögur, þ.e. rithöfundurinn, ljóðskáldið,
útgefandinn og Þóra, hefðu eingöngu rætt um pólitík.10
Þóra var líka sjálf iðulega í hlutverki gestgjafans enda var heim-
ili þeirra hjóna líkast félagsmiðstöð þar sem húsfreyjan bakaði
pönnukökur í hvelli ef gesti bar að garði (Halla Kristjana Hall-
grímsdóttir munnleg heimild 2007). Þetta var menningarheimili
sem stóð öllum opið og margir áttu eftir að minnast með hlýju.
Þannig skrifaði Ólafur Jóhann Sigurðsson: „Þau bjuggu hér og hvar
í borginni í harla ólíkum húsakynnum, en þó fannst mér andrúms-
loftið á heimili þeirra ávallt hið sama. Eg hygg að húsfreyja hafi átt
ósmáan þátt í þeim hlýlega og frjálslega blæ mennta, lista og gest-
risni, sem þar réð ríkjum og virtist í senn öldungis óháður stofu-
stærð og síbreytileika þessara tíma“ (Ólafur Jóhann Sigurðsson
1980). Þóra lék án efa stórt hlutverk í félagslífi þeirra hjóna, henni
9 Svo má spyrja hvort hún hafi talað nógu góða dönsku til að taka fullan þátt í
samræðunum.
10 Pia Koivunen hjálpaði mér að finna út að Þóra hefur sennilega átt við Arvo Tur-
tainen. Þóra skrifaði eingöngu eftirnafn hans í dagbók sína og erfitt er að ráða ná-
kvæmlega fram úr rithönd hennar í þessu tilfelli.